Morgunn - 01.12.1953, Síða 65
MORGUNN
143
stokkur stóðu upp úr vasanum á vinnufötunum, sem voru
venjulegur samfestingur (over-all). Gamli maðurinn gekk
rólega þvert yfir gólfið og rétti syni sínum höndina. Son-
urinn ætlaði naumast að trúa eigin augum sínum en stóð
upp og tók í hönd föður síns. Hann fór að segja eitthvað,
en fyrr en hann vissi af dróst höndin úr hendi hans og
sýnin var horfin. Meðan hann stóð á gólfinu þrumu lost-
inn var dyrabjöllunni hringt. Þetta var símskeyti frá Kali-
forníu um að faðir hans hefði skyndilega látizt af hjarta-
slagi.
Fyrsta spurningin verður e. t. v. sú, að hve miklu leyti
maðurinn hafi raunverulega séð föður sinn, eða hvort
hann hafi ímyndað sér þetta svo sterklega, að undirvit-
und hans hafi kallað fram þessa mynd. Eða m. ö. o., hvort
hann hafi ekki blátt áfram orðið fyrir skynvillu. Var þessi
sýn beinlínis brot af draumi, sem tók á sig fasta mynd,
sem vökuvitund hans skynjaði?
Það er hægt að framkalla skýrar skynvillur með því
að neyta áfengis, vissra lyfja, eða með dáleiðslu. Það
er algengt að ofdrykkjumenn sjái ýmsa óhugnanlega hluti,
eins og t. d. skríðandi dýr. Dáleiddur maður stendur tyrir
framan auðan vegg, og þá er hægt að láta hann sjá hverja
þá mynd á veggnum, sem dávaldurinn skipar honum að
sjá. Eins getur það komið fyrir, að glaðvakandi maður,
sem ekki er undir neinum sérstökum áhrifum, sjái öðru
hvoru hluti, sem alls ekki eru raunverulegir. Um sýn
mannsins frá Dallas er það að segja, að faðir hans dó
alls ekki í vinnufötunum, sem sonur hans sá hann klædd-
an í. En þegar sonurinn sá hann, klæddi undirvitund hans
föður hans óðara í búning, sem hann þekkti vel á föður
sínum. Af þessu atviki er ekki óhjákvæmilegt að draga
þá ályktun, að nokkur hafi raunverulega staðið við rúmið,
þótt ekki sé hins vegar unnt að neita því fullkomlega.
En það eru til önnur atvik, sem erfiðara er að skýra
sem skynvillu.