Morgunn - 01.06.1952, Blaðsíða 9
Úr ýmsum áttum.
★
Lesendum MORGUNS mun öllum kunnugt um greinar
danska prestsins, sem kom hingað sem gestur á liðnu sumri
„til þess að kynnast íslenzku kirkjulífi". Einn þeirra manna,
sem hann nafngreindi sem heimildarmann að ummælum
sínum um kirkjulífið hér og skoðaður hefur verið sem
erindreki danska heimatrúboðsins á Islandi, fullyrti við
hann, að spíritisminn gei'ði menn ómóttœTúlega fyrir krist-
indóminn.
Vitanlega lætur slík fullyrðing hlægilega í eyrum alls
þorra manna á Islandi, en málið hættir að vera hlægi-
legt, þegar þess er gætt, að hér lýsir maður, sem allmikið
hefur farið fyrir í kirkjulífi þjóðar vorrar, þótt hann hafi
aldrei náð því að verða kosinn í prestsembætti, yfir því,
að séra Haraldur Níelsson hafi ekki verið
Var kristinn. Raunar var slíkri staðhæfing
séra Haraldur stundum kastað fram á fyrstu baráttu-
þá heiðingi? árum séra Haralds, en á seinni árum hafa
menn síður treyst sér fram á ritvöllinn
með slíka fullyrðing. Minningin um þennan fágæta trú-
mann, kirkjuleiðtoga og skörung er enn svo lifandi með
þjóð vorri, að marga mun hnykkja við, þegar vitað er,
að flokkur manna er að reyna að vinna slíkum skoðun-
um fylgi með þjóðinni og leiða þær til öndvegis í íslenzku
kirkjulífi. Það er vegna alltof mikils tómlætis margra
spíritista um kirkjumálin, að menn skuli enn þora að bera
slíkar fullyrðingar fram.
Um aldamótin síðustu var enn ráðandi í kirkjulífinu