Morgunn - 01.06.1952, Síða 42
Þrjár góðar bækur.
★
Síðan MORGUNN kom siðast hafa honum verið sendar
þrjár bækur um sálræn efni, sem mikil ánægja er að
minnast.
Að tilhlutun Sálarrannsóknafélags Islands kom út fyrir
jólin erindasafn eftir prófessor Harald Níelsson: Lífið og
ódauöleikinn. Varð það að vonum, að menn fögnuðu þeirri
bók. Mönnum er svo enn í minni snilld próf. Haralds, fágæt
mælska hans og þekking á sálarrannsóknamálinu, að bók
með erindum eftir hann hlaut að verða aufúsugestur mörg-
um.
Þessi bók er sýnishorn af erindum hins ágæta leiðtoga,
og valdi séra Sveinn Víkingur, er sá um útgáfuna, þessi
erindi í bókina: Um svipi lifandi manna, — Bömin, sem
deyja ung, — Vitranamaður, — Reimleikar í Tilrauna-
félaginu, — Dulskyggnigáfa systranna í Fljótsdal, — og
Heimkoman.
Síðan prófessor Haraldur flutti þessi erindi og MORG-
UNN birti þau, — að einu fráskildu, — er vaxin upp ný
kynslóð í landinu, sem eðlilega þekkir minna til starfs séra
Haralds en kynslóðin, sem samtímis honum var, og ber
því þess vegna mjög að fagna að þessi erindi hafa verið
gefin út að nýju. Próf. Haraldur er vissulega einn þeirra
fáu, sem eiga að yngjast upp með hverri nýrri kynslóð.
1 formálsorðum sínum að bókinni segir séra Sveinn Vík-
ingur:
„Á þessum viðsjálu og villugjörnu tímum, þar sem menn,
þrátt fyrir allar hinar tæknilegu framfarir, búa við meira