Morgunn


Morgunn - 01.06.1952, Side 70

Morgunn - 01.06.1952, Side 70
64 MORGUNN að vera farartæki, er flytji oss æðri og fullkomnari mátt, tækifæri til aukins skilnings og fyllri þekkingar á dýrð og dásemd hins sýnilega umhverfis vors, er vér höfðum ekki áður uppgötvað. Hinn sýnilegi heimur er í raun og veru ekki það, er oss skiptir mestu, heldur sá innri, er hinn efnisræni svíf- ur í, ef svo má að orði komast. Hverfleiki og fallvalt- leiki einkennir hinn sýnilega heim vorn, allt er á hverf- anda hveli, en vér leitum fyrst og fremst þess, sem er stöðugt og varanlegt, hins sígilda og ævarandi. Ef hin nýja heimsmyndarkenning fær orðið til þess að beina at- hygli vorri að því, er nú sem stendur virðist vera utan við oss, þá er jafnvíst, að þetta hlýtur að beina för vorri inn á við, áleiðis til miðdepils þess, sem hver einasta mannssál endurvarpar ljósbliki frá. Með þetta í huga skynjum vér manneðlið sem gimstein guðs, ákvarðaðan til að skína í ósegjanleik guðdómlegrar geisladýrðar. Þetta er að hyggju minni hinn sanni spiritualismi, það sem vér ættum að leita, og hver þau skilaboð, sem til vor berast yfir landamærin, ættu að brýna þetta takmark fyrir oss. Og — takist miðlunum okkar að vera vakandi hið innra, þá munu þeir áreiðanlega verða ljósberar og vegsögumenn mannkynsins í leit þess að þekkingu á veruleik andlegra lífssanninda, þekkingu sem hin eirðarlausa nútíð og hið friðvana mannkyn þarfnast svo mjög. E.L. sneri úr ensku (Light).

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.