Morgunn - 01.12.1962, Blaðsíða 3
Úr ýmsum áttum
★
Skozkur miðill
hjá S.R.F.1.
1 okt. s. 1. var um þriggja vikna skdð gestur S. R. F.
1. skozki miðillinn Mrs. Jean Thompson, sem tvívegis
fyrr hefir komið hingað til að starfa fyrir félagið. Frú-
in er einn kunnasti nútímamiðla með Bretum. Hún hélt
þrjá fjöldafundi með skyggnilýsingum. Ekki verður sagt
að þeir tækjust meira en í meðallagi vel og ekki eins vel
og þeir hafa áður tekizt hjá frúnni í
Rvík. Aftur á móti tókust sextíu
einkafundir, sem hún hélt, flestir vel
og sumir ágætlega. Þar fengu margir skemmtilegar
sannanir fyrir miðilsgáfu frúarinnar. Oss lék að sjálf-
sögðu hugur d að vita, hvort f. v. varaforseti félagsins,
frú Soffía Haraldsdóttir, mundi gera vart við sig á fund-
um þessum. Þessvegna var þess vandlega gætt, að mið-
illinn fengi ekki vitneskju um andlát hennar. En Mrs.
Thompson hafði verið persónulega kunnug frú Soffíu,
og kunnugri henni en öðrum Islendingum. Mrs. Thomp-
son kom til Rvíkur í flugvél snemma morguns og ók
beint af flugvellinum að Hótel Borg til þess að hvíla sig,
en fyrstu fundina átti hún að hafa þennan sama dag,
fyrsta fundinn kl. 2. Þegar stjómarmenn þrír komu á
hótelið kl. 1 til þess að heilsa henni og fylgja henni á
fundarstaðinn, spurði hún óðara um vinkonu sína, frú
Soffíu, og var henni svarað: „Henni líður ágætlega, þið
munuð hittast fljótlega." Síðdegis sama dag sátu tveir
stjómarmenn fund hjá frúnni, sem þá
vissi ekki annað en hún myndi hitta frú
Soffíu um kveldið. Skömmu eftir að
miðillinn sofnaði, tók stjómandinn að lýsa próf. Haraldi
Tilraun sem
tókst vel