Morgunn - 01.12.1962, Blaðsíða 14
100
MORGUNN
Svik og
sannanir.
ur borgari Rvíkur sagði við ritstjóra Morguns um þetta
mál: „Sannleikurinn mun liggja einhversstaðar milli
öfganna, milli trúlausa prófessorsins og „frelsaða manns-
ins“, sem skrifaði í eitt dagblaðanna um málið.“ Þessum
manni munu margir sammála.
Miðilssvik hafa mörgum orðið að þeim
ásteytingarsteini, að þeir hafa ályktað út
frá svikunum, að málið væri allt vafið
svo ískyggilegum hlutum, að réttast væri að eiga ekkert
við það. Ágætustu sálarrannsóknamenn hafa farið öðru-
vísi að. Þegar Evsapia Paladino virtist staðin að svikum,
bauð Sir Oliver Lidge hennin til Bretlands, ef hún vildi
skilyrðislaust halda fundi við skilyrði sem hún fengi
ekkert um að segja, og engu að ráða um. Hún gekk að
þeim skilyrðum. Það gegnir furðu, að ekki skuli allir
miðlar leita þess, að starfa við skilyrði, sem útiloka
svikagrun gegn þeim. Enginn miðill ætti að hafa starfið
í höndum sínum, og raunar alger óhæfa, að miðlar skuli
sjálfir taka við pöntunum fundargesta. Hverjar upplýs-
ingar gætu miðlar á þann hátt ekki aflað sér um fundar-
gestina, áður en þeir konoa á fundinn? Mörg eru þess
ömurleg dæmi, einnig hérlendis, hvert er hægt að fara
með miðilsfundi, sem þannig er stofnað til. Erlendis
njóta þeir miðlar ekki trausts, og naumast aðsóknar,
sem vinna ekki hjá viðurkenndum félögum, sem láta
trúnaðarmenn sína ráða fundargestum án vitundar mið-
ilsins. Þetta er svo sjálfsögð varúðarráðstöfun, að furðu
gegnir, að ekki skuli bæði fundargestir og miðillinn
krefjast hennar.
Annars lítur úr fyrir það að í framtíð-
inni muni sannana fyrir framhaldslífi
verða leitað að nokkru á öðrum vegum en fram að þessu.
Þeir sem nú reka vísindalegar sálarrannsóknir undir
nafninu parapsychologie, nota miðla til rannsóknanna
miklu minna en fram til þess hefir verið talið nauðsyn-
legt. Þeir fást miklu meira við fyrirbrigði, sem óvænt
Nýjar leiðir.