Morgunn - 01.12.1962, Blaðsíða 37
Dr. L. Weatherhead:
Viðhorf kristninnar til
endurholdgunar
★
Spurningin, sem ég óska að gera að umræðuefni, er
hvort vér höfum lifað áður í einhverju öðru líkamsgerfi
og hvort vér munum gera það aftur eftir dauðann.
Ég mun vissulega ekki leggja neinar ályktanir fyrir
lesandann og biðja hann að samþykkja þessa kenningu.
Sjálfur hefi ég ekki tekið ákveðna afstöðu til málsins.
Að trúa þessu ber ekki vott um andlega fræðslu né held-
ur hitt, að neita þessu. Niðurstöður um þetta hljóta að
verða hugspekilegar. Sönnun er engin til.
Eigi að síður er kenningin um endurholdgun athyglis-
verð ýmissa hluta vegna. 1 fyrsta lagi trúir mikill hluti
mannkynsins á hana, — eitt hundrað og fimmtíu millj-
ónir Búddhatrúarmanna og tvö hundruð og þrjátíu
milljónir Hindúatrúarmanna, svo nefnd séu dæmi, —
og í öðru lagi eru nokkrar vandaspurningar, sem engin
svör virðast við, en leystar verða að nokkru eða öllu
leyti, ef endurholdgun er viðurkennd.
Sumum finnst, að það sé ekki í samræmi við kristileg-
an rétttrúnað (orthodoxy), að trúa á endurholdgun. Ef
tök væru á að sanna þetta, þá væri það hræðilegt ákæru-
skjal, en mitt álit er, að slíkt sé ekkj mögulegt. Vér skul-
um byrja á því að athuga þetta atriði.
Kristur boðaði aldrei beinlínis kenninguna um endur-
holdgun, þótt hún væri kennd af Essenunum, sem var á
hans dögum stór trúarflokkur. Samt sem áður virðist