Morgunn - 01.12.1962, Blaðsíða 54
140
MORGUNN
píslarvættisdauða Stefáns. 1 bænum kaþólsku kirkjunn-
ar, sem lesnar skulu við dánarbeði, segir: „Komi skín-
andi skarar englanna til móts við sál þína, þegar hún
hverfur út úr líkamanum“. Og eftir andlátið er beðið:
„Komið honum til hjálpar, komið til móts við hann,
þér englar drottins".
Gömul er kristin trú á engla, sem falið hefir verið
að vaka yfir ákveðnum hópum manna, söfnuðum, þjóð-
um og fjölskyldum. Sérstaklega ber að nefna engla guð-
þjónustunnar, englana sem tengdir henni eru. Hinn
mikli kirkjufaðir, Origenes, kenndi: „Þegar trúaðir
menn koma saman til guðþjónustu, starfa saman tveir
söfnuðir, söfnuður manna og söfnuður engla. Og vér
trúum því, að englar standi andspænis söfnuði trúaðra í
guðþjónustunni. „Frægasti predikari fornkirkjunnar.
lærdómsmaðurinn Krysostomus, skilgreinir betur starf
þessara engla. Hann segir: „Englar Guðs umkringja
prestinn, - einkum er hann stendur frammi fyrir altar-
inu. Þeir fylla helgidóminn og altarið er umkringt him-
neskum hersveitum.“
Hin kristilega englatrú leggur á það megináherzlu, að
af sjálfum sér séu englarnir ekki neitt, heldur aðeins
og algerlega fulltrúar, erindrekar Guðs. Einnig má
segja, að markmið englanna sé fremur guðsríkið en ein-
staklingurinn.
Cand theol. Johs. Dmgsdcl