Morgunn - 01.12.1962, Síða 72
168
MORGUNN
hve nauðsynlegt það er að kunna að velja milli eyðingar
og uppbyggingar, milli styrjalda og friðar. Ur járninu
hafa mennimir smíðað sér sverð og úr járninu hafa
þeir líka smíðað plóginn. Úr járni hafa þeir smiðað
bryndreka og jámið hafa þeir líka notað til þess að
byggja heimili fyrir menn. Járnsteinninn er einn hluti
þeirrar auðlegðar, sem jörðin gefur okkur. Hvernig eig-
um við að nota hann?
1 þessu herbergi, sem að öllu ber svip hins fyllsta ein-
faldleika, fellur ljósgeislinn á steininn. Hér er engin
önnur tákn að finna, ekkert sem leiðir athyglina að sér
og tmflar kyrrðina innra með okkur sjálfum.
Ef við horfum frá þessu eina tákni og á vegginn að
baki þess,mæta auganu einfaldar línur, sem opna svið
samræmis, friðar og jafnvægis.
Gamalt máltæki segir að þýðing kersins sé ekki fólgin
í veggjum þess, hliðunum, heldur í rúminu, tóminu. Eins
er farið þessu herbergi.
Það er hlutverk allra þeirra, sem hingað koma, að
fylla tómið, herbergið því, sem þeir finna í þagnarheimi
sálar sinnar.
Jón A uöuns þýddi.