Morgunn - 01.12.1962, Blaðsíða 27
MORGUNN
113
þessi efni .1 rórnv. kaþólsk tímarit. Þessar rannsóknir
eru beint áframhald af sálarrannsóknunum, þótt aðferð-
ir séu ekki allar þær sömu. 1 kirkjulegum málgögnum
evangelískra manna er naumast nokkru sinni vikið að
þessum málurn, sem geysifjöldi manna í löndum mótmæl-
enda hefir þó hinn mesta áhuga fyrir. Svo ólíklega ætl-
ar kannski að fara, að rómverska kirkjan skilji betur
tímanna tákn og átti sig á því fyrr en kirkjur mótmæl-
enda, að það verður kirkjunni til ámælis en ekki fram-
dráttar, að láta straum þess mikla mannfjölda leita út
fyrir kirkjuna, sem fylgir af alhug þessum málum og
veit, að þau geta, í réttra manna höndum, orðið til stuðn-
ings kristni og kirkju, vegna þess að á leiðum þeirra
hafa fjölmargir fengið staðfestingu á því, sem þeir gátu
ekki trúað í búningi hinnar kirkjulegu túlkunar.
Auk þessa rómv. kaþólska félags um rannsókn sál-
rænna fyrirbæra og tjáninga eru engin kirkjulega sam-
tök til um þetta mál önnur en samtök brezkra kirkju-
manna um sálarrannsóknir. Þarna fer kaþólsk kirkja og
önnur hálfkaþólsk í fararbroddi og þær fá virðingu af.
Kirkja Lúthers, sannleiksvottarins mikla, hins glæsilega
frumherja frjálsrar hugsunar um andleg mál á sinni tíð,
lætur sinn hlut eftir liggja, en hneigist meir og meir á
síðustu tímum að nýrri orþodoksíu. En á þeim leiðum
er mikil hætta á því, að hún fjarlægist samtíð sína meir
og meir, með meiri og meiri íhaldssemi um guðfræði og
kirkjuform.
Jón Auóuns.
8