Morgunn - 01.12.1962, Síða 7
MORGUNN
93
ams standa í allt öðru ljósi hér eftir on hingað til. Höf.
bókarinnar „The Spiritualist" dregur vægðarlaust fram
þessa raunalegu staðreynd til þess að sýna fram á, hve
varlega er treystandi mönnum, þótt vísindafrægðar
njóti, ef þeir eru einir um rannsóknir sínar og fyrir-
brigðin eru ekki rannsölcuð ef fleiri ábyrgum mönnum
samtímis. Svo mikið er hinsvegar til af sönnunargögn-
um fyrir miðilsgáfunni, að málið stendur engan veginn
á herðum fárra, né fellur þótt einstakir miðlar verði
uppvísir að blekkingum. Þetta er sálarrannsóknamönn-
um og ábyrgum spíritistum ljóst, þessvegna hafa þeir
jafnaðarlega brugðizt svo við, er svik hafa komið upp,
að þeir hafa vægðarlaust skrifað um þau, fordæmt þau.
þeir hafa verið hvað ákafastir .í að gera sjálfir hreint
í sínu eigin húsi. Enda er markmið sálarrannsókna-
manna það eitt að leita sannleikans, hver sem hann er,
og ekkert annað.
Þetta var útúrdúr, og verður nú nokkuð
nánar vikið að bókinni um frú Láru
Ágústsdóttur. Safnað liefir verið saman
allmiklu af frásögnum sjónar- og heyrnarvotta af fyrir-
bærum, sem fólk tjáir sig hafa sannreynt hjá henni.
Úr því velur sra Sv. Víkingur allmargar sögur, er hann
birtir í bók þessari, til þess að gefa lesendum hugmynd
um fjölbreytni fyrirbæranna hjá miðlinum. Ritstj.
Morguns hefði kosið, að betur væri vottfest. T.d. er sú
venja Brezka Sálarrannsóknafél., að oftast eru tveir eða
fleiri aðilar, sem vottar urðu að sama fyrirbrigði, spurð-
ir sinn í hvoru lagi, og síðan eru frásagnirnar vandlega
bornar saman, áður en frásögn er birt. Sérstaklega hefði
slílc vinnubrögð verið æskileg, þegar um er að ræða
miðil, sem gefið hefir ástæðu til varúðar. Sjónarmið höf.
er hinsvegar það, að naumast mundi sögunum fremur
trúað, þótt fleiri vottuðu. Alllangur kafli er í bók þess-
ari, sem nefnist „Fræðslufundur“. Það efni var tekið
á segulband norður á Akureyri, og bir*t orðrétt í bókinni
Fræðsla um
andaheima