Morgunn


Morgunn - 01.12.1962, Page 12

Morgunn - 01.12.1962, Page 12
98 MORGUNN fyrsta lagi hlutir, sem tilraunamönnum var vel kunnugt um. I öðru lagi hlutir, sem tilraunamenn vissu lítið um. I þriðja lagi hlutir, sem tilraunamenn vissu ekkert um og ókunnugt fólk utan úr bæ hafði sent tilraunamönnum. Árangurinn sýndi tvímælalausa hlutskyggnigáfu, en inn- an allþröngra takmarka. Miðillinn var mjög fús til þess- ara tilrauna. Hann handlék hlutina,. stundum í umbúð- um, brá þeim stundum upp að enni sér og tók síðan að segja sögu þeirra, eins og hún barst skynjun hans. Nið- urstaðan varð þessi: Um fyrsta flokkinn gat miðillinn þrásinnis sagt margt, sem allt reyndist rétt, en allt það vissu tilraunamenn, svo að hér þurfti ekki um annað en fjarhrif vera að ræða. Þó mistókst sumt algerlega um þennan flokk hlutanna. Um annan flokkinn, hlutina, sem tilraunamenn vissu lítið um, voru mistökin miklu fleiri. Og um þriðja flokkinn, hlutina, sem tilraunamenn vissu ekkert um, kom bókstaflega ekkert jákvætt fram, en all- margt, sem var rangt. Niðurstaðan af þessum tilraunum varð því sú, að um hlutskyggnihæfileika væri að ræða, en innan þeirra takmarka þó, sem hér er sagt frá. í bókinni er greinilega frá því sagt, hvernig miðillinn telur sig komast í miðilsástandið og margt, sem athyglisvert er um ástand miðilsins, er hann fær dulskynjanir sínar. Svarar Hafsteinn Björnsson þeim spurningum skipulega og eru frásagnir hans mjög fróðlegar til samanburðar við það, sem aðrir miðlar segja úr reynslu sinni. Margir T „ kaflar eru þarna, sem athyglisverðir Lifsskoðun , f geta orðið fyrir þa, sem sjalfir eru einhverjum sáirænum gáfum gæddir, eða vilja vinna með slíku fólki. Ekki sem algild sannindi, er allt sálrænt fólk gildi, heldur sem leiðbeining og til samanburðar við eigin reynslu. Hinsvegar hnaut ritstj. Morguns stundum um fullyrðingar og staðhæfingar um efni, sem ekki verð- ur fullyrt um og öllu frekar liggur á sviði trúar en sann- ana. Það sem mörgum mun þykja hugðnæmast við þessa bók, eru játningar höf.,, bornar fram af innileik og ein-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.