Morgunn - 01.12.1962, Side 53
Verndarenglar
★
Trúin á verndarengla er þungamiðja kristilegrar
englatrúar. Gamla testamentið segir oss frá englum,
sem heimsóttu Abraham, hjálpuðu Hagar í eyðimörkinni,
vernduðu mennina þrjá í eldstofninum og leiddu Lot og
fjölskyldu hans úr hinum fordæmdu borgum. Nýja
testamentið segir frá englinum, sem varaði Jósef við
yfirvofandi hættu og sagði honum að fara um skeið frá
Gyðingalandi. Og Nýja testamentið segir frá englum,
sem leystu postulana úr fangelsi og leiddu þá út um
miðja nótt.
Trúin á verndarengla skipar ákveðinn sess í kaþólskri
trú og kenningu. Mesti guðfræðingur rómversku kirkj-
unnar, Tómas Aquinas, segir: Þegar við fæðinguna er
barninu fenginn verndarengill. Það er eftirtektarvert,
að hér er Guð ekki látinn gefa skírðum börnum einum
vemdarengil. Og sjálfur Lúther segir: „Vita skulum vér
það, að allra beztu vinir vorir eru ósýnilegir. En það eru
blessaðir englarnir, sem í trúfesti sinni og hollustu,
fórnarvilja sínum og sannri vináttu, fara langar leiðir
fram úr beztu jarðnesku vinunum, sem vér getum eign-
ast. Þannig njótum vér samfélagsins við himneska anda
á marga lund“.
Hugarburður og barnaleg rómantík verður þrásinnis
fyrir oss í englatrú lcristinna manna. En stundum sýnast
englar hafa birtzt hér jarðneskum mönnum, íklæddir
ljósi eða í mannlegri mynd. Vér getum notið verndar
þeirra á hættustund, ef vér erum opnir fyrir slíkri
hjálp. Þeir innblása listamenn og rithöfunda. Á fæðing-
arstund og á dánardegi eru þeir hjá oss. Samanber