19. júní


19. júní - 19.06.1989, Síða 38

19. júní - 19.06.1989, Síða 38
samband við nokkrar ömmur aðrar sem voru sama sinnis. I framhaldi af því var utanríkisráðherra send áskor- un frá okkur í apríllok þar sem krafist var viðskiptabanns á Suður-Afríku þegar í stað. Skömmu síðar, á mæðradaginn 8. maí 1988, var svo efnt til fundar þar sem samtökin voru formlega stofnuð og þá bættust fleiri ömmur í hópinn. Núna erum við orðnar milli 30 og 40.“ — Hafa friðarömmur einhver markmið sem eru frábrugðin mark- miðum annarra friðarhreyfinga, til dæmis Friðarhreyfingar íslenskra kvenna? „Já, það má segja það að vissu marki. Sameiginlegt er auðvitað það markmið að við viljum berjast gegn stríðsógnum og vígbúnaði, en í aug- um okkar sem erum orðnar ömmur teljum við brýnast að vernda börn og unglinga gegn hörmungum styrjalda og ofbeldis. Við höfum áhyggjur af þeirri framtíð sem bíður barnabarn- Kvenna- sögu- safn Islands Kvenna- sögusafn íslands Hjarðarhaga 26, Reykjavík, sími 12204. anna okkar ef ekki verður horfið frá þeirri hernaðarhyggju sem hefur ráð- ið ferðinni í heiminum. Það er hræði- legt að hugsa til þess að fjöldi barna víðs vegar í heiminum þjáist og þolir hörmungar af völdum þess hugsun- arháttar fullorðna fólksins að styrj- aldir séu nauðsynlegar og eigi því rétt á sér og það gleymist að börnin eiga skýlausan rétt á að vaxa úr grasi og njóta friðar hvar sem þau fæðast í heiminum.“ — En hvaö geta fáeinar ömmur á íslandi gert til að breyta þessu? „Það er nú einmitt tilgangurinn með starfi okkar að stuðla að hugar- farsbreytingu og þótt við séum hér bæði fáar og langt frá vettvangi eigin- legra stríðsógna, ber okkur skylda til að hafast eitthvað að. Ef enginn hreyfir mótmælum er engin von til þess að hlutirnir þokist til hins betra. Við teljum að það sé margt hægt að gera hér hjá okkur til að vinna að slíkri hugarfarsbreytingu og við leggjum mesta áherslu á að börnin sjálf fái fræðslu og uppeldi til friðar. Öðruvísi getum við ekki átt friðsam- legri heim í vændum.“ — Hvað hafið þið gert til að vinna að þessu markmiði? „Hinir fullorðnu verða að sjálf- sögðu fyrst að gera sér grein fyrir því hversu mikið er um að alls kyns of- beldi sé haldið að börnum. Það á sérstaklega við um sjónvarpsefni, en líka ýmiss konar tölvuleiki og leik- föng sem gerð eru fyrir ofbeldisleiki, s. s. Rambo og He-man. Þegar við leggjum blessun okkar yfir slíka leiki t. d. í sjónvarpi en fordæmum alvöru ofbeldi og stríð í sama miðli felst í því tvískinnungur og tvíræð skilaboð sem börn eiga erfitt með að skilja. Við verðum einfaldlega að forða þeim frá slíkri innrætingu eins og hægt er með því að fá þeim ekki svona leikföng í hendur og reyna að draga úr því ofbeldi sem fyrir augu þeirra ber í sjónvarpi. Fyrsta verk okkar á stofnfundin- um á mæðradaginn í fyrra var að skora á forráðamenn sjónvarps- stöðvanna að sýna ekki ofbeldis- myndir á þeim tíma þegar börn eru helst að horfa á sjónvarp, þ.e. á fyrri hluta kvölddagskrár. Fyrir síðustu jól gerðum við sjálfar könnun í öllum helstu leikfangaverslunum á höfuð- borgarsvæðinu á úrvali leikfanga og komumst að því að til eru verslanir sem ekki hafa stríðsleikföng á boð- stólum. Til dæmis fór ég sjálf í leik- fangadeild Hagkaupa og mér til ánægju fann ég þar hvergi leikfanga- byssu. Vonandi er það þannig alltaf, þótt ég viti það ekki með vissu. I framhaldi af þessu skrifuðum við dreifibréf sem beint var til annarra amma, og reyndar afanna líka, að þau gæfu barnabörnum sínum ekki stríðsleikföng í jólagjöf, heldur veldu þroskandi leikföng, bækur eða mjúka pakka í staðinn. Eg á enn eftir að nefna okkar aðal- baráttumál, en það er að tekin verði upp bein friðarfræðsla í skólum og leikskólum. Við sendum núverandi menntamálaráðherra bréf á liðnum vetri þar sem þess var farið á leit að friðarfræðsla yrði sett á námskrá grunnskólanna og vinnuhópur settur á fót til að útbúa slíkt efni. Okkur var svarað því til að í nýju námskránni væri gert ráð fyrir fræðslu um mann- réttindi og skyld málefni og verður það að teljast spor í áttina.“ — Er friðarfræðsla þá lausnin og í hverju er hún fólgin? „Ef friðarfræðsla í skólum helst í hendur við uppeldi til friðar, sem verður auðvitað að koma frá heimil- unum líka, teljum við að hún geti haft ósegjanlega mikil áhrif. Það er hægt að kenna einstaklingum að leysa vandamál sín án ofbeldis, að bera virðingu fyrir skoðunum ann- arra. Það er líka hægt að fræða börn um siði og menningu annarra þjóða og kenna þeim um leið að virða þá sem eru aldir upp við öðruvísi kring- umstæður og kannski ekki síst að bera umhyggju fyrir þeim sem á ein- hvern hátt eru minni máttar. Allt eru þetta atriði sem myndu gera einstakl- inginn færari um að lifa í sátt við aðra og stuðla þannig að friðsamlegri heimi. Þessu til viðbótar má svo ekki gleymast að upplýsa börn um hörm- ungar og hættur sem stafa af ofbeldi og stríðsátökum. Við höfum orðið varar við alls kyns misskilning um friðarfræðslu og friðaruppeldi hjá fólki og þar sem við teljum þetta brýnasta verkefni hjá okkur friðarömmum réðumst við í stærsta verkefni okkar til þessa, en það var ráðstefna um efnið „Hvað er friðaruppeldi og friðarfræðsla?“ og við bindum miklar vonir við að okk- ur takist í kjölfar hennar að vekja upp umræðu í þjóðfélaginu um þetta efni,“ sagði Ina að lokum og það leynir sér ekki á svip hennar að frið- arömmur ætla ekki að láta sitt eftir liggja til að stuðla að bættum heimi fyrir barnabörnin og framtíðina. 38
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.