Frjáls verslun - 01.01.2001, Side 9
Þau séu mun betri hjá Netbankanum
og máli sínu til sönnunar vitnar hann í
samanburð á nafnávöxtun árið 2000
sem sýnir að Netbankinn hafði hæstu
ávöxtunina í tveimur liðum, óverð-
tryggðum innlánsreikningum (11,38%)
og verðtryggðum innlánsreikningum
(10,83%).
„Þessar tölur sýna að hagkvæmur
rekstur skilar sér til viðskiptavina.
Munurinn á útlánsvöxtum, t.d. yfir-
dráttarvöxtum, er mun meiri. Þar eru
vextir Netbankans allt að 3-4% lægri
en vextir almennu bankanna og getur
þetta vaxtabil sparað fólki háar fjár-
hæðir á ári og ættu menn að staldra
við og hugleiða þau mál. Vaxtastigið á
útlánum er mjög hátt og því skipta
þessar prósentur miklu máli. Má geta
þess að ef einstaklingur er að jafnaði
yfir árið með 500.000 kr. yfirdráttar-
heimild getur ávinningur hans verið allt
að 33.500 kr. á ári ef hann flytur við-
skipti sín til nb.is. Yfirdráttarvextir á
venjulegum tékkareikningum eru nærri
21% en hjá okkur eru þeir 14,30-
17,30%," segir Geir.
Þrefalt öryggi
- Hvernig er öryggið í bankavið-
skiptum hjá ykkur á Netinu?
„Við erum með besta fáanlega öryggið.
Við byggjum á svokölluðum 128 bita ör-
yggisstaðli þar sem allar aðgerðir og um-
sóknir eru dulkóðaðar þannig að enginn
kemst í þau gögn. í fyrsta lagi þarf not-
endanafn til að komast inn og í öðru lagi
lykilorð, sem notandinn einn veit. Til þess að bóka færslur þarf í þriðja
lagi fjögurra stafa öryggisnúmer sem einnig er notað í þjónustusíma
og þjónustuveri bankans. Viðskiptavinurinn skráir inn færslur sínar og
fær síðan upp staðfestingarsíðu þar sem hann getur sannreynt að
hann hafi slegið rétt inn. Það er ekki fyrr en ýtt er á „staðfest" að
færslan gengur inn til Reiknistofu bankanna."
Kristín María Stefánsdóttir þjónustufulltrúi. Þjónustufulltrúar Netbankans eru til viðtals alla virka
dag milli klukkan 8-19 í þjónustuveri.
Forsíða Netbankans. Slóðin er www.nb.is.
inga höfðu aðgang að Netinu heima, í
vinnu eða skóla í lok desember og það er
mikil aukning frá árinu á undan. Sérstak-
lega hefur netaðgangur heima aukist. í
desember 1999 höfðu 49 prósent netað-
gang frá heimili en í desember 2000 var
þessi tala komin upp í 64 prósent.
Heimilin eru því í auknum mæli að net-
væðast," svarar hann.
Geir hvetur þá sem sinna sínum bankaviðskiptum á Netinu hjá
gömlu bönkunum að kynna sér nb.is því fjárhagslegur ávinningur af
viðskiptum við nb.is getur verið verulegur.
Framtíð Netbankans nb.is er björt og er hann góður kostur fyrir þá sem
vilja betri vaxtakjör og geta sinnt bankaviðskiptum sínum á Netinu.SS
Heimilin netvæðast
- Hvernig hefur bankanum verið tekið?
„Mjög vel. Mjög margir viðskiptavinir komu til okkar strax í upphafi og
síðan hafa viðskiptin aukist jafnt og þétt. Mesta aukningin var auðvit-
að í byrjun, eins og gefur að skilja, og þá auglýstum við mest. Mark-
hópurinn er launþegar á aldrinum 25-55 ára enda hefur raunin orðið
sú að flestir viðskiptavinir okkar eru á þeim aldri, þó heldur fleiri í
yngri hópnum en þeim eldri. Dreifing viðskiptavina er nokkuð jöfn eftir
starfsstéttum, en að undanförnu hefur viðskiptavinum í hópi
stjórnenda og sérfræðinga fjölgað mest enda er þetta sá hópur sem
vinnurmest viðtölvur.
Nýleg könnun um Internetnotkun sýnir að þrír fjórðu hlutar íslend-
^^hkínn
www.nb.is
Netbankinn ■ Pósthólf 1155 ■ 121 Reykjavík.
Sfmi: 550 1800 - Fax: 550 1801
www.nb.is • netbankinn@nb.is
mmmmm
9