Frjáls verslun - 01.01.2001, Síða 10
iJÍf
FRÉTTIR
Benedikt Jóhannesson, framkvœmdastjóri Talnakönnunar, útgefanda Frjálsrar verslunar, afhendir
Olgeiri og eiginkonu hans, Rut Þorsteinsdóttur, myndir að gjöffrá Talnakönnun.
FV-myndir: Geir Olafsson
Maður ársins útnefndur
I el á annað hundrað
gestir mættu í veislu
I Fijálsrar verslunar á
Hótel Sögu og samglöddust
Olgeiri Kristjónssyni, for-
stjóra EJS, þegar blaðið út-
nefndi hann mann ársins
2000 í atvinnulifinu. Þetta var
þrettánda útnefning Fijálsrar
verslunar á manni ársins. I
þakkarávarpi sínu sagði 01-
geir meðal annars: „Islensk
upplýsingatæknifyrirtæki
eru flest ung að árum og
byggja fæst á gömlum
grunni. Heimsfrægðin verð-
ur að bíða þar til uppfýlltar
hafa verið grundvallarkröfur
um stærð, þekkingu, vöru-
vöndun og arðsemi. Fyrr
getur upplýsingatæknin ekki
orðið að íslenskum útflutn-
ingsatvinnuvegi.“ SH
Viðurkenningu fagnað. Hjónin Rut Þorsteinsdóttir og Olgeir
Kristjónsson, forstjóri EJS.
Björn Bjarnason
menntamalarað-
herra afhendir
Olgeiri viðurkenn-
inguna fyrir hönd
dómnefndar.
Dómnefndin ásamt manni ársins. Frá vinstri: Jón G. Hauksson, ritstjóri
Frjálsrar verslunar, Þorgeir Baldursson, forstjóri Odda, Magnús Hreggviðs-
son, stjórnarformaður Fróða, Olgeir Kristjónsson, maður ársins, Benedikt
Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar, útgefanda Frjálsrar versl-
unar, og Skúli Þorvaldsson, athafnamaður og eigandi Hótel Holts. Á mynd-
ina vantar Guðmund Magnússon, prófessor við Háskóla Islands.
Vigfús Asgeirsson,
tryggingastœrðfrœð-
ingur hjá Talna-
könnun, og Stein-
grímur Ari Arason,
framkvœmdastjóri
Lánasjóðs íslenskra
námsmanna.
Frábærir listamenn, þau Martial Nardeau og Elísabet Waage,
skemmtu vel á annað hundrað veislugestum.
10