Frjáls verslun - 01.01.2001, Síða 25
Kári Stefánsson gerir það ekki endaslepþt. íslensk erföagreining mælist vinsœlasta fyrirtæki landsins, annað árið í röð, sjónarmun á undan
Bónusi, þráttfyrir ótrúlegt andstreymi í fjölmiðlum vegna hruns á gengi hlutabréfa ífyrirtækinu.
ing i toppsætinu!
Hrun á gengi bréfa í deCode Ef það er eitthvað sem fjárfest-
ar geta lært af gullæðinu sem greip um sig gagnvart deCode
og fleiri fyrirtækjum fyrstu mánuðina í fyrra er það að aldrei
skyldu menn ganga að einhverju vísu þegar hlutabréf eru ann-
ars vegar. Það getur allt gerst. Utboðsgengi deCode við skrán-
ingu á Nasdaq var 18 dollarar á hlut. Hæst fór gengið í deCode
í um 62 dollara á hlut á gráa markaðnum hérlendis síðustu dag-
ana í janúar í fyrra, eða eftir að Islensk erfðagreining fékk
rekstrarleyfi til gerðar og starfrækslu gagnagrunns á heil-
brigðissviði til næstu 12 ára. Lengst af var það á þessu tímabili
um 50 dollarar á hlut. Á landsþingi Frjálslynda flokksins fyrir
skömmu gagnrýndi Sverrir Hermannsson, formaður flokks-
ins, að Ijármálafyrirtæki landsins, eins og Landsbankinn, hefðu
tekið deCode „upp á arma sína og narrað vankunnandi Islend-
inga til að kaupa hluti í félaginu á allt að sexföldu verði“. Þessu
mótmælti Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans,
með því sama og sagði bankann hafa selt 60% til fagijárfesta á
genginu 15 til 17 dollara á hlut. Gengi hlutabréfa í deCode er
núna um 9 dollarar á hlut. Áréttað skal að á meðan Jjárfestar
selja ekki hlut sinn í deCode er aðeins um reiknað tap að ræða,
það verður ekki að veruleika nema þeir selji bréfin og leysi
þannig tapið úr læðingi.
Bónus og Hagkaup bæta við Sig í könnuninni í fyrra vakti
mikla athygli hve vinsældir einstakra Baugsbúða hefðu minnk-
að mikið. Bónus er sigursælasta fyrirtækið í þessari könnun
frá upphafi og hefur oftast vermt toppsætið. Sömuleiðis hefur
Hagkaup notið velgengni, en það var vinsælasta fyrirtækið árin
‘89, ‘90 og ‘93 og hefur jafnan verið viðloðandi toppsætið. Að
þessu sinni bætir Bónus við sig um 3% og mælist með 9,6%
fylgi, sjónarmun á eftir íslenskri erfðagreiningu. Hagkaup bæt-
ir einnig við sig og fer úr 3,2% upp í 3,9%.
Þrjár helstu verslanakeðjur Baugs, þ.e. Bónus, Hagkaup
og 10-11, fara inn á vinsældalistann. Og sömuleiðis móðurfyr-
irtækið sjálft, Baugur. Nýkaup, sem núna er aðeins ein versl-
un í Kringlunni, kemst hins vegar ekki inn á listann að þessu
sinni. Samtals vinsældir Baugs og Baugsbúða mælast núna
14,9% miðað við 11,4% í fyrra. Þarna munar mest um fylgis-
aukningu Bónuss. En þetta er önnur hliðin á málinu. Fólk er
einnig spurt um óvinsæl fyrirtæki og þar er verulegur við-
snúningur, Baugi og Baugsbúðum í hag. Samtals mældust
óvinsældirnar í fyrra 14,9% en núna 8,2% Færri hafa neikvæð
viðhorf til Bónuss og Hagkaups en þó munar mest um
minnkandi neikvæð viðhorf til Baugs.
ICELANDAIR
Flugleiðir eru að venju í einu af toþþsætum listans og er þriðja vin-
sælasta fyrirtækið. En þetta er greinilega afar umdeilt félag. Annað
árið í röð mælist það óvinsœlasta fyrirtœkið.
25