Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 30
1
KÖNNUN UIVI FORINGJA STJÓRNARANDSTÖÐUNNAR
Mun fleiri nefna Steingrím J. Sigfusson en Óssur Skarþhéðinsson sem
helsta foringja stjórnarandstöðunnar og munarþar mestu um að mik-
ill meirihluti sjálfstæðismanna, 65%, telur Steingrim J. vera helsta
foringja stjórnarandstöðunnar. FV-mynd: Geir Olajsson
Spurt var: Hver finnst þér vera helsti foringi stjórnarandstöð-
unnar? Nokkrir aðrir en Steingrímur J. og Össur komust á blað,
en yfirburðir þeirra tveggja voru algerir; 92,3% þeirra, sem tóku
afstöðu, nefndu nafn annars hvors þeirra. Margrét Frímannsdótt-
ir var nefnd í 1,8% tilvika og Jóhanna Sigurðardóttir í 1,5%. Nöfn
annarra bar sjaldnar á góma en þess má geta að Garðar Sverris-
son, formaður Öryrkjabandalagsins, var tvisvar nethdur.
Alls svöruðu 670 manns. 218 gátu ekki gert upp hug sinn
eða neituðu að svara spurningunni, en 452 tóku afstöðu til
hennar. Ef aðeins er horft til þeirra sem nefndu nöfn þeirra
Össurar eða Steingríms J. er niðurstaðan sú að 57% nefna
Steingrím J. en 43% Össur.
Mikill meirihluti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins nefna
Steingrím J. sem helsta foringja stjórnarandstöðunnar, eða 65% á
móti 35% er nefna Össur. Þá nefna 26% stuðningsmanna Samfylk-
ingarinnar Steingrím J. Um 14% stuðningsmanna Vinstri grænna
telja hins vegar Össur vera helsta foringjann.
Það skal tekið fram að í könnuninni var spurt um foringja
stjórnarandstöðunnar áður en spurt var um fylgi við flokkana.
Helstu niðurstöður í könnuninni um fylgi flokkanna eru þær að
listar Samfylkingar og vinstri grænna fengju 48,7% eða meira fylgi
Hver er foringi stjórnarandstödunnar?
Steingrfmur hefur vinninginn
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar
- græns framboðs, er að flestra mati helsti foringi stjórn-
arandstöðunnar og nýtur hann meira fylgis en Össur
Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, hvað þetta
snertir. Þetta er niðurstaða könnunar Frjálsrar verslunar sem
gerð var dagana 24. til 29. janúar sl.
en listar stjórnarflokkanna tveggja, Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks, sem fengju 46,1% fylgi.
Samfylkingin fékk 25,1% fylgi í könnuninni en U-listi vinstri
grænna 23,6%. Samkvæmt DV-könnun, sem tekin var nánast
sömu daga, fékk Samfylkingin hins vegar aðeins 16,5% og var
mikill fréttaflutningur um þá niðurstöðu í ijölmiðlum. 33
Sala á bjór og léttvíni í matvöruverslunum:
Naumur meirihluti fylgjandi
Naumur meirihluti er fyrir því að leyfa sölu á bjór og léttvíni í
matvöruverslunum, samkvæmtkönnun Fijálsrar verslunar
sem tekin var dagana 24. til 29. janúar sl. Hjá þeim sem tóku
afstöðu voru 54% fylgjandi en 46% andvíg. Nokkur munur mælist
á afstöðu karla og kvenna í þessu máli; karlar vilja frekar rýmka
reglurnar og leyfa sölu á bjór og léttvíni í matvörubúðum.
Spurt var: Ert þú með eða á móti sölu á bjór og léttvíni í mat-
vöruverslunum? Ails voru 670 spurðir og tóku 615 afstöðu en 55
voru óákveðnir eða neituðu að svara.
Þeir sem eru yngri en 45 ára eru áberandi harðari fylgjendur
þess því að leyfa sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum. En við
þennan aldur aldur mælist eins konar þröskuldur þvi fólk eldra en
45 ára er andvígt sölu á bjór og léttvíni með þessum hætti.
Meiri andstaða er úti á landsbyggðinni en á höfuðborgar-
svæðinu við sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum. I Reykja-
vik, á Reykjanesi og á Suðurlandi sögðust um 57% vera fylgjandi.
En á Austurlandi, Norðurlandi eystra, Yestíjörðum og Vestur-
landi voru hins vegar fleiri andvígir en fylgjandi. Það kann að
koma sumum spánskt fyrir sjónir því aðgengi fólks að vínbúðum
er almennt minna úti á landsbyggðinni.
Mun meiri andstaða er á meðal kvenna en karla í þessu máli.
Um 61% karla eru fylgjandi sölu á bjór og léttvíni í matvörubúð-
um en 49% kvenna.33
Sala á bjór og léttvíni í matvörubúðum?
Já Nei
54%
30