Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 32
KÖNNUN UIVI iJÓNUSTU ÍSLflNDSPÓSTS__
Póstur í krísu!
Með kveðju, segir Pósturinn í aug-
lýsingum sínum. Eftir að Islands-
póstur hefur lent í tveimur krís-
um að undanförnu hafa sumir sagt í
kaldhæðni að um kaldar kveðjur væri að
ræða. Og ef einhverjum skyldi hafa hug-
kvæmst að keppa við Póstinn og stofna
póstfýrirtæki getur sá hinn sami gleymt
því - í bili að minnsta kosti. Islandspóst-
ur hefur einkarétt á að dreifa bréfapósti
hérlendis. Hann á hins vegar í sam-
keppni í bögglapósti, eins og við rútur, fyrirtæki í land-
flutningum og flugið.
Fyrri krísan, sem kom upp hjá Póstinum, var fyrir jólin þeg-
ar mikið vantaði upp á að póstur og bögglar kæmust til skila. I
könnun Frjálsrar verslunar, sem tekin var dagana 24. til 29. jan-
úar sl., sögðust 19% svarenda hafa orðið persónulega fyrir því
að þjónusta Islandspósts brygðist fyrir jól. Það má túlka sem
svo að fimmtungur Islendinga segi farir sínar ekki sléttar gagn-
vart Póstinum um síðustu jól, mesta annatímanum í póstsend-
ingum. Það er býsna hátt hlutfall. Spurt var: Varðst þú persónu-
lega fyrir því að þjónusta Islandspósts brygðist fyrir síðust jól?
Seinni krísan varð í byijun þessa mánaðar þegar fjölmiðlar
birtu fréttir af því að Islandspóstur hefði fengið upplýsingar hjá
lögreglunni vegna starfsumsókna en á daginn kom að þær upp-
lýsingar voru fengnar hjá Tollstjóranum í Reykjavík. Um var að
ræða óformlegar upplýsingar um það hvort tilteknir umsækj-
endur um störf hjá fyrirtækinu tengdust fíkniefnamálum.
Snorri Olsen, tollstjóri í Reykjavík, hefur gefið út þá yfirlýsingu
Yarðst þú persónulega fyrir því að þjónusta
Islandspósts brygðist fyrir síðustu jól?
Já Nei
19% 81%
að óeðlilegt sé að embættið veiti slíkar
upplýsingar og búið sé að girða fyrir að
starfsmenn embættisins veiti þær í fram-
tíðinni.
Fijáls verslun fékk smjörþefinn af fyrri
krísu Póstsins um jólin. Boðsbréf vegna
veislu blaðsins á Hótel Sögu síðdegis
þann 28. desember í tilefni af útnefningu
á manni ársins í viðskiptalífinu voru send
út eftir hádegi fimmtudaginn 21. desem-
ber sl. Bréfin eru ævinlega stíluð heim til
gesta. Undir venjulegum kringumstæðum hefði þau átt að ber-
ast til gesta föstudaginn 22. desember og í síðasta lagi miðviku-
daginn 27. desember. Flestir fengu bréfin sem betur fer heim
til sín í tæka tíð fyrir veisluna. En allt kom fyrir ekki. Daginn
eftir hófið, að morgni hins 29. desember, hringdi einn boðs-
gesturinn í Frjálsa verslun og tilkynnti að bréfið hefði borist
heim til hans þá um morguninn.
Stjórnendui’ íslandspósts hafa gefið út þá skýringu að krísan
um jólin hefði stafað af því að starfsmönnum var gefið frí á
Þorláksmessu, sem bar upp á laugardag, og á aðfangadag. Síð-
ustu dagana fyrir jól barst hins vegar gríðarlegt magn bréfa og
böggla inn á pósthúsin og var um 40% aukningu að ræða frá fyrri
árum. Sömuleiðis hefði gengið illa að hlaða bögglum í bíla fyrir-
tækisins til útkeyrslu hjá póstmiðstöðinni á Stórhöfða vegna þess
að húsnæðið bauð ekki upp á að hlaða marga bíla í einu og því hafi
langar biðraðir myndast. Stjórnendur Póstsins segja að þessi mis-
tök muni ekki endurtaka sig. Fyrir næstu jól verði unnið bæði á
Þorláksmessu og á aðfangadag, og nauðsynlegar breytingar verði
gerðar á húsnæði til að ferma marga bíla í einu.
Auðvitað er Póstinum ekki alls varnað. Að öllu jöfnu berst
póstur hratt og vel til fólks og bryddað hefur verið upp á nýj-
ungum í þjónustunni. Það er sjaldgæft að bréf komist ekki til
skila og það fremur stundvíslega. Að vísu minnast menn atviks
fyrir nokkrum árum norður á Akureyri þegar einhver lausráð-
inn póstmaðurinn nennti ekki lengur að bera út póst og
geymdi hann í skotti á bíl sínum svo dögum skipti. En svo var
skottið opnað og bréfin komu í ljós. Þarna blasti raunar við
einn vandi Póstsins í hnotskurn. Hann býr við það það að ýms-
ir gera þar stuttan stans og Hta á starf þar fremur sem tíma-
bundið en fast. Fyrir vikið eru mannaskipti tíð hjá fyrirtækinu
og slíkum breytingum fylgir ævinlega rask. Fyrir vikið gengur
véfin ekki eins og smurð. Það þekkja öll fyrirtæki sem ganga í
gegnum mannaskipti - og hvað þá tíð.
í áðurnefndri könnun Fijálsrar verslunar um þjónustu ís-
landspósts voru 670 manns spurðir og 666 þeirra svöruðu
spurningunni og tóku afstöðu. Um 19% urðu fyrir því að Póst-
urinn brygðist. Þetta var þó svoHtið misjafnt eftir landshlutum.
Á Austurlandi og Vestflörðum sögðust fæstir hafa lent í því per-
sónulega að þjónustan brygðist, eða um 4% á Austurlandi og
um 12% á Vestfjörðum.
Samkvæmt dagatalinu ber næstu Þorláksmessu upp á
sunnudag. Þann dag verður hvíldardagurinn ekki tekinn jafn
heilagur - og tvær krísur kenna mönnum. Næsta hátíð verður
góð kveðjustund. BD
Um 19% svarenda segjast í
könnun Frjálsrar verslunar
hafa on)i() persónulega fyrirpví
/
aö pjónusta Islandspósts
brygöist fyrir síöustu jól.
Eftír Jón G. Hauksson
Með kveðju, segir Pósturinn í auglýsingum sínum. Núna hefur Is-
landsþóstur lent í tveimur krísum með stuttu millibili.
32