Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2001, Síða 37

Frjáls verslun - 01.01.2001, Síða 37
kallaða TPOS lausn. Til okkar koma nauðsynlegar upplýsingar um við- komandi viðskipti þannig að yfirlitið, sem við sendum til viðkomandi við- skiptamanns, er nægilegt sem bókhaldsgagn. í framhaldi af þessu höf- um við búið til kort sem heitir Fyrirtækjakort Flugleiða og MasterCard (Corporate kort). Það sækir áþekkar upplýsingar og er um leið alþjóðlegt MasterCard kreditkort og hægt að nota hvar sem er í heiminum," segir Páll Kr. Svansson, forstöðumaður Fyrirtækjasviðs EUROPAY íslands. Corporate kortið Corporate kortinu er ætlað að vera útgjaldastjórnunartæki fyrir fyrir- tækin. Sumir hafa óttast að kort af þessu tagi sé eyðsluhvetjandi en Páll segir að reynslan sýni að svo sé ekki. Kortið hefur verið á mark- aði í eitt og hálft ár og gefist vel. „Við höfum litið á kortið sem nauðsynlegt tæki fyrir starfs- Corporate kortinu er ætlað að vera útgjaldastjórnunartæki fyrir fyrir- tæki og stofnanir. tækisins, til hliðar, einfalda ferlana og gera þá sjálfvirkari. Jafnframt fá stjórnendur mun betri upplýsingar um smáinnkaup og hafa miklu betri stjórn á þeim. Nokkrar ríkisstofnanir hafa tekið þátt í frumverkefni Innkaupa- kortsins sem hófst í maí á síðastliðnu ári. Þeirri prófun er að Ijúka og býðst þá öðrum ríkisstofnunum, sveitarfélögum og stórum fyrirtækjum að fá Innkaupakort. f vor hefst samstarf við birgja sem geta boðið upp á yfirlit um viðskipti. Upplýsingum um úttekt verður þá safnað í gagna- grunn og munu deildarstjórar og forstöðumenn geta skoðað nákvæm- ar upplýsingar um innkaupamálin. Jafnframt verða upplýsingar um viðskipti sendar rafrænt í bókhald ríkisstofnana og fyrirtækja. Kortalausir viðskiptareikningar í ríflega eitt ár hefur EUROPAY ísland boðið upp á innheimtuþjónustu sem felst í því að EUROPAY ísland hýsir reikningsviðskipti á rafrænu formi og annast innheimtu fyrir fyrirtæki. Þetta fyrirkomulag er kallað Kortalausir viðskiptareikningar og er sérstakt viðskiptanúmer lykillinn að þeim. Þessi þjónusta einfaldar öll reikningsviðskipti hjá þessum fyrirtækjum og lækkar kostnað við bókhald og innheimtu. Flugleiðir er fyrsta fyrirtækið sem hefur nýtt sér þessa þjónustu og hafa sambæri- leg viðskipti verið tekin upp hjá Flugfélagi íslands. „Fyrirtækin hafa aðgang að viðskiptavinum sínum í gegnum kerfi okkar og geta nýtt sér þær upplýsingar til innheimtu. Þau spara sér að halda utan um eigið kerfi, fá úttektir viðskiptavina sinna greiddar og við sjáum um innheimtuna. Tveimur mánuðum síðar endursendum við það sem óinnheimt er. Skilin hafa verið mjög góð og við endursendum að jafnaði innan við tvö prósent af upphaflegum kröfum. Viðskiptavin- ir verða lítið varir við okkur og stjórnendur Flugleiða og Flugfélags ís- lands eru mjög ánægðir með þessa þjónustu. Þeir spara sér mikinn kostnað," segir Páll Kr. Svansson.S!] menn sem þurfa að ferðast mikið á vegum fyrirtækisins og kunna með kort að fara. Starfsmönnum er falið mikið ábyrgðarsvið og verkefni sem geta valdið útgjöldum og því getur verið nauðsynlegt að treysta þeim fyrir korti. Til þess að tryggja að upplýsingar um notkun kortanna komist á hæsta stig stjórnskipulagsins innan fyrirtækisins höfum við útbúið svokallað móðurkort. Forstjóri eða fjármálastjóri er þá handhafi þess, síðan hefur forstöðumaður og deildarstjóri í hverri deild aðalkort og undirmennirnir aukakort. Móðurkorthafi fær síðan ítaryfirlit þar sem fram koma allar úttektir starfsmanna fyrirtækisins," segir hann. „Með því að bjóða upp á móðurkortið og Itaryfirlit með öllum færslum korthafa innan fyrirtækisins tryggjum við að eftirlitsþættin- um sé vel sinnt. Fyrsta útgáfa þessa yfirlits var pappfrsgagn og innan skamms geta menn sótt þessi gögn á rafrænu formi til okkar." Corporate kortið hefur auk þess allar nauðsynlegar ferðatrygging- ar, þ.m.t. bílaleigutryggingu og af notkun þess innanlands reiknast punktar í Vildarklúbb Flugleiða. Með Corporate kortinu fylgir auk þess einstaklings Gullkort (Einkakort) en árgjald þess er innifalið í árgjaldi Corporate kortsins. Innkaupakortið Innkaupakort ríkisins hefur vakið mikla athygli. „Stofnanir ríkisins hafa innkaupa- og bókunarferla sem oft er flókið ferli. Með því að taka smáinnkaupin út úr þessu þunga ferli og einfalda það er hægt að koma í veg fyrir mikinn kostnað. Þannig er verið að draga innkaup, sem eru verðlítil á heildina litið og skipta litlu máli um afkomu fyrir- Páll Kr. Svansson, forstöðumaður Fyrirtækjasviðs EUROPAY Islands. Mynd: Geir Ólafsson IMIiMilillilil 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.