Frjáls verslun - 01.01.2001, Síða 39
SAMEINING FYRIRTÆKJA
Trúlofun slitið. Slit Austurbakka og Thorarensen lyfja á
trúlofun sinni hefur vakið mikla athygli og verið mikið
rædd manna á meðal í viðskiptalífinu, ekki síst vegna
þess að þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem upp
úr trúlofun slitnar hjá Austurbakka. En hvað gerðist?
FV-mynd: Geir Ólafsson
víndeild. Lyfladeildin hefði að sjálfsögðu orðið stærst þar sem
lyflainnflutningur beggja fyrirtækja hefði sameinast af fullum
krafti. Veitið athygli að bæði fyrirtækin eru heildsölur og þvi drif-
in áfram af sölumönnum og góðum vörumerkjum. Raunar hefur
komið fram í íjölmiðlum að fyrirmynd Austurbakka sé John-
son&Johnson fyrirtækið í Bandaríkjunum sem byggir á sölu
þekktra vörumerkja og lætur deildir sínar vera mjög sjálfstæðar
í rekshi. Af þekktum vörumerkjum Austurbakka má nefna
íþróttamerkin Nike, Top-Flite, Spalding og Dunlop. Hann er
með þekkt merki í áfengi, eins og Otard koníak og Glenfiddich
viskí, sem og í hvítvíni og rauðvíni. Sömuleiðis i bjór, Ld. Dab og
Fosters. Aðrar deildir eru lækna- og hjúkrunarvöru- og lyfja-
deild. Starfsemi Thorarensen lyfla er fyrst og fremst á sviði inn-
flutnings á lyijum og hefur fyrirtækið umboð fyrir marga þekkta
lyfjaframleiðendur, eins og Janssen-Ciclag og Novartis og
Roche, svo nokkrir séu nefiidir.
Það er vissulega ofmælt að segja að fyrirtækin haíi veríð kom-
in upp að altarinu, en þau voru á leiðinni þangað. Það var t.d.
klappað í báðum fyrirtækjunum þegar félögin undirrituðu,
sunnudaginn 10. desember sl., samkomulag um samrunann í
meginatriðum. Sagt var að samruni fé-
laganna hefði það að meginmarkmiði að
/ tryggja hámarksárangur fyrir hluthafa,
viðskiptavini og starfsfólk. Stefnt var að
þvi að skrifa endanlega undir hinn 21.
desember. Ekkert varð úr þvi.
i Hið stóra EF...
| Helstu hluthafar ef af
^ sameiningu hefði orðið.
Alma Thorarensen, 17,4%,
Elín Thorarensen, 17,4%,
Svala Thorarensen, 17,4%,
Árni Þór Árnason, 14,1%,
Valdimar Olsen, 14,1%,
Guðmundur Hallgrímsson, 5,8%,
Gilding, 4,2%,
Búnaðarbankinn, 2,1%,
Aðrir hluthafar í Austurbakka, 7,6%
hlutaskiptingu að Thorarensen lyf væru að yfirtaka Austur-
bakka. Þó var unnið samkvæmt þeirri formúlu frá upphafi að um
samruna fyrirtækjanna yrði að ræða og að prímus mótorar
beggja fyrirtækjanna, Stefán Bjarnason, framkvæmdastjóri
Thorarensen lyija, og Arni Þór 7\rnason, framkvæmdastjóri
Austurbakka, yrðu í eldlínu hins sameinaða fyrirtækis og drifu
það áfram. Austurbakki var lokað Jjölskyldufyrirtæki þar til í des-
ember 1999 er fyrsta skrefið var stigið að opnun þess. í fyrravor
var það síðan opnað upp á gátt þegar það var skráð á Verðbréfa-
þingi. Hugsunin með sameiningunni var sú að Thorarensen lyf,
sem er lokað ijölskyldufyrirtæki, yrði dótturfélag Austurbakka.
EigendurThorarensen lyfja myndu á hinn bóginn eignast meiri-
hlutann, 58%, í Austurbakka og stytta sér þannig leið inn á Verð-
bréfaþing og hinn opna hlutabréfamarkað.
Vilji var til þess að deildir beggja fyrirtækja yrðu áfram mjög
sjálfstæðar en þær eru lyfja-, lækna- og hjúkrunar-, íþrótta- og
Jólin frábær og áramótin fín Fyrir jól
leit ekki út fyrir annað en að af samrun-
anum yrði. Jólin voru frábær og ára-
mótin fín. Skál. Allt virtist leika í lyndi í
þessu ástarsambandi. Síðan gerðist hið
óvænta í fyrstu viku hins nýja árs. Setja
átti kraft í lokahnykkinn því svona við-
ræður mega ekki taka of langan tíma.
Þá fóru að renna tvær grímur á við-
mælendur, beggja vegna borðsins.
Auðvitað hafði borið á milli í viðræðunum,
eins og gengur, en ekki með þeim hætti að upp úr þeim slitnaði.
En það hljóp snurða á þráðinn, kúvending, og trúlofuninni var
slitið formlega sunnudaginn 7. janúar. Tilkynnt var um það dag-
inn eftir, mánudaginn 8. janúar. Fufltrúar beggja fyrirtækja kipptu
sér ekki upp við þessi málalok. Þetta var einfaldlega ástarsam-
band sem farið hafði út um þúfur. Innan herbúða beggja fyrir-
tækja er haft fyrir vist að þetta hafi verið einn af þessum skilnuð-
um sem ganga vel og þægilega fyrir sig, án hávaða, haturs og
særinda. Slikir skilnaðir eru víst til og þessi er einn af þeim.
Sagan á bak Við Skilnaðinn Útilokað er að fá nokkurn til að segja
beint út hvað raunverulega gerðist, á hveiju steytti. Ljóst er þó að
upp úr viðræðunum slitnaði fremur óvænt á fundi fyrirtækjanna
með fulltrúum Landsbankans, sem kom viðræðunum á og leiddi
þær, en þessi sögulegi fundur fór iram í húsakynnum Thoraren-
sen lyfla við Vatnagarða fimmtudaginn 4. janúar. Eftir því sem
næst verður komist olli nýtt skipuriL sem Landsbankinn lagði
Eftir því sem næst verður komist olli nýtt skipurit, sem Landsbankinn lagði óvænt fram á fundin-
um hinn 4. janúar að beiðni Thorarensen lyfja, nokkru fjaðrafoki hjá Austurbakkamönnum.
Komnir voru inn nýir kassar sem þeir voru ósáttir við.
39