Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 49
FYBIRTÆKIN Á NETINU
Brautryðjandi
Efdr Guðrúnu Helgu Sígurðardóttur
W
Islenskar getraunir var eitt fyrsta get-
raunafyrirtækið í heiminum til að
hefja starfsemi á Netinu þegar fyrir-
tækið hóf sölu getraunaseðla á slóðinni
www.lx2.is í nóvember 1996. I dag fara
40 prósent af sölu fyrirtækisins fram á
Netinu og býst Haraldur V. Haraldsson,
sölu- og markaðsstjóri Islenskra get-
rauna, við því að stöðugleika verði náð
eftir eitt til tvö ár. Þá megi búast við að
salan á Netinu nemi allt að 50 prósentum
af heildarveltu fyrirtækisins. Arið 1999
var veltan 380 milljónir króna.
„Við vorum brautryðjendur í sölu á
Netinu. Árið 1996 var Internetið orðin
viðurkennd leið til samskipta á milli
tveggja tölva og útbreiðsla Netsins var
um 50 prósent þannig að við ákváðum að
veðja á Internetið og það heppnaðist
mjög vel. Við fórum með fyrsta leikinn
okkar inn á Netíð í nóvember 1996 en
það var Lengjan. Hún hefur verið þar síð-
an. Ari síðar fórum við með getrauna-
seðlana okkar, enska getraunaseðilinn
og þann ítalska, inn á Netið. Vefurinn
okkar hefur byggst á sölu á þessum
þremur leikjum," segir Haraldur.
Hálfhræddir við breytingar Vef íslenskra
getrauna, www.lx2.is, var tekið ágætlega
strax í upphafi. Notkunin fór að vísu hægt af
stað en salan margfeldaðist á nokkrum
mánuðum. Vefurinn hefur lítið breyst frá
upphafi. Hann er tvískiptur, annars vegar er
um almennar upplýsingai' að ræða; um fyr-
irtækið, fótboltann, fréttir, reglugerðir o.þ.h.
Hins vegar er sala á getraunaseðlum. Til
umræðu hefur verið að taka vefinn til end-
urskoðunar og má búast við að hann verði
settur í andlitslyftingu á næstu misserum.
„Við höfum verið hálf hræddir við að
breyta honum mikið því að umferðin og
salan um hann eykst sífellt. Vefurinn
virðist vera einfaldur og ég tel mikilvægt
að hann sé einfaldur, léttur og þægilegur
og að auðvelt sé að læra á hann þannig
að nýir gestir geti komið þar inn og
verslað hjá okkur á einfaldan hátt. 011
verslun fer fram með kreditkortum og
vinningar leggjast inn á sama kort og
verslað er fyrir,“ segir Haraldur.
Hann telur að veltan á Netinu geti far-
ið upp í 50 prósent af heildarveltunni á
næstu tveimur árum en ekki meira því að
sölustaðirnir muni alltaf skila sínu. „En
ég held að það sé bjartsýni að ætla eitt-
hvað meira,“ segir hann.
Þannig að þið hafið þá náð ákveðnu jafn-
vægi?
Já, ég myndi halda það. Það hefur hægt
mjög á vextinum þannig að ég myndi
segja að innan tveggja ára myndum við
nálgast algjöran stöðugleika í þessu. En
svo veit maður aldrei hvað framtíðin ber
í skauti sér. Nýir miðlar koma inn, t.d.
gagnvirkt sjónvarp, þannig að næstu
vaxtarbroddar kunna að liggja þar á
kostnað sölustaða úti í bæ.“
Eru þið með aðra leiki á döfinni?
„Lottóleikirnir koma fljótlega inn hjá okk-
ur. Við höfum verið að ganga frá samn-
ingi við íslenska getspá um að þeir fái af-
not af sölukerfi okkar og menn eru mjög
bjartsýnir um að það eigi eftir að skila
lottóinu góðum tekjum. Við höfum próf-
að nýja getraunaleiki en þeir hafa ekki
reynst nógu vel. Þetta er erfiður markað-
ur viðureignar, samkeppnin er gríðarleg
og fólk vill spila þar sem miklir peningar
eru í boði. Nýir leikir bjóða eiginlega
ekki upp á það,“ svarar Haraldur. 31]
GSM-kerfi Símans
nærtil 98% þjóðar
innar og er það
kerfi sem önnur
íslensk fjarskipta-
fyrirtæki treysta á.
SIMINN