Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 67
Grunnvernd
„Sérhver rekstraraðili hefur þörf fyrir ákveðn-
ar grunntryggingar til að ná yfir helstu
áhættuþætti í rekstri," segir Agnar. Grunn-
tryggingum í hefðbundnum fyrirtækjarekstri
má skipta í þrjá flokka: Eignatryggingar,
slysatryggingar og ábyrgðartryggingar. Af
eignatryggingum eru helstar brunatrygging,
vatnstjónstrygging og innbrotatrygging en
þessar tryggingar ná bæði yfir húseignir og
lausafé. Með eignatryggingum flokkast
einnig rekstrarstöðvunartryggingar sem eru
mikilvægar stöðvist rekstur tfmabundið, komi
til tjóns t.d. vegna bruna. Slysatrygging laun-
þega bætir þeim tjón sem slasast
við vinnu og í frítíma, en það fer
eftir ákvæðum kjarasamninga. Að
sögn Agnars eru gerðar stöðugt rík-
ari kröfur til okkar um ábyrgð á því
sem við tökumst á hendur. Ábyrgð
atvinnurekenda vegna athafna eða
athafnaleysis eykst því stöðugt og
dómstólar gera strangari kröfur. Til
þess að mæta þessari ábyrgð er
boðið upp á ábyrgðartryggingar sem
bæta þriðja aðila tjón hans verði
fyrirtækið eða rekstraraðilinn
skaðabótaskyldur. Raunar er boðið
upp á margs konar ábyrgðartrygg-
ingar, allt eftir þörfum hverju sinni.
Starfsábyrgðar-
trygging
Umfang starfsábyrgðartrygginga fer
vaxandi í tryggingaflórunni á íslandi
og þó nokkrum starfsstéttum er lög-
um samkvæmt skylt að hafa slíka vátrygg-
ingu, t.d. byggingastjórum og hönnuðum, lög-
fræðingum, bllasölum og fasteignasölum en
þeir fá ekki starfsleyfi nema þessi trygging sé
fyrir hendi. Af sama toga er sjúklingatrygg-
ing, sem sjálfstætt starfandi heilbrigðisstétt-
um er skylt að hafa frá 1. janúar sl. „Þetta er
hluti af neytendaverndinni því þarna koma
hagsmunir neytenda inn," segir Pétur Már.
Netvernd
Meðal nýjunga hjá VÍS má svo nefna Net-
verndina sem tekur á breyttri áhættu í rekstri
fyrirtækja með notkun Netsins sem sam-
skiptatækis.
„Netverndin tryggir fyrirtækin gegn hugs-
anlegum áföllum af völdum rafrænna við-
skipta eða annarra samskipta yfir Netið.
Þetta hentar öllum fyrirtækjum sem eru með
einhvers konar nettengda starfsemi. Það er
hægt að tryggja tiltölulega einfalda starf-
semi, á borð við tölvupóstkerfi fyrirtækis, en
það er líka hægt að tryggja aðra og flóknari
starfsemi, t.d. vefsíður fyrirtækja og rafræn
viðskipti í gegnum þær," segir Agnar.
Liftryggingar
„Við viljum líka minnast á líftryggingar. f
harðri baráttu um hæfa og eftirsótta starfs-
menn getum við boðið fram aðstoð okkar
hvað tryggingar varðar því við erum
að byrja að markaðssetja nýja teg-
und af starfsmannatryggingu. Ef fyr-
irtæki vilja halda í eftirsótta starfs-
menn geta þau t.d. boðið þeim ýms-
ar vátryggingar sem þeim kann að
þykja verðmæti í," segir Pétur Már.
Meðal fjöldamargra annarra
trygginga sem VÍS býður upp á fyrir
fyrirtæki og rekstraraðila má nefna
flutningatryggingar fyrir fyrirtæki í
innflutnings- og útflutningsstarfsemi
og skipa- og bátatryggingar. Jafn-
framt býður VÍS upp á ýmsar sér-
hæfðar tryggingar.
Um 20 starfsmenn starfa á at-
vinnutryggingasviði VÍS, sem er til
húsa í höfuðstöðvum fyrirtækisins
að Ármúla 3 í Reykjavík. Fyrirtækið
er með 18 svæðisskrifstofur um allt
land og 41 umboðsskrifstofu, sem
hægt er að leita til.Ui
VÍS er til húsa að Ármúla 3 í Reykjavík.
VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS HF
Ármúla 3,108 Reykjavík ■ Sími: 560 5060 - Fax: 560 5108.
Veffang: www.vis.is ■ Netfang: upplysingar@vis.is
67