Frjáls verslun - 01.01.2001, Qupperneq 72
Sœmilegt úrval er til afAmarone vínunum í ÁTVR. Afþeim 5 vínum sem til eru er Masi Amarone 1996 á kr. 2.590, mjög skemmtilegt og með
öll bestu einkenni Amarone vínanna. Pasqua Amarone Vignetti Casterna, á kr. 2.440, er einnig skemmtilegt. FV-mynd: Geir Ólafsson
Fyrir hartnær 20 árum var ég
staddur í Vínarborg. Um kvöldið
ætlaði ég á frægan veitingastað
þar sem austurríska eldhúsið var í
hávegum haft. Þar var ekkert borð
að fá þannig að ég varð frá að hverfa.
Eg fór því að svipast um eftir öðrum
veitingastað. Það bar lítinn árangur
því allir voru þeir fullsetnir, enda
áliðið kvölds og fjölmargir borgarbú-
ar og ferðamenn að koma af tónleik-
um, úr óperunni eða leikhúsunum. A ráfi mínu um borgina
fögru rakst ég allt í einu á lítinn ítalskan veitingastað. Já, hann
var svo sannarlega lítfll, þar var í mesta lagi pláss fyrir 12
gesti. Enginn matseðill var í boði heldur aðeins réttur dags-
ins sem var villisvín. Þetta var ódýr veitingastaður og fylgdi
vín hússins með rétti dagsins. Þjónninn, sem var eldri kona,
en annar eigandinn, eiginmaður hennar, var í eldhúsinu,
skenkti mér vín í glas. Þetta var rauðvín, ilmríkt og nánast
svart á litinn. Eg dreypti á víninu og það lá við að mér brygði
því bragðið var með ólíkindum. Það var eins og í glasinu væri
vín sem í væri þjappað öllum einkennum og eiginleikum góðs
rauðvíns. Þetta var ást við fyrsta bragð, ef svo má að orði
komast. Þessi ást hefur haldist í gegnum árin og þrátt fyrir að
ég hafi stundum orðið fyrir vonbrigðum hefur þetta yndislega
vín veitt mér ófáar ánægjustundir.
Amarone Vínið sem hér um ræðir
kallast Amarone og kemur frá Veneto
á Italíu. Fullu nafni heitir þetta göfuga
rauðvín Recioto Della Valpolicella
Amarone. Vínbændurnir í Veneto
kalla þó vínið oftast Recioto, sem dreg-
ið er af Recia, sem er mállýska í hérað-
inu og þýðir eyra. Astæðan er sú að
þrúgurnar sem notaðar eru í Amarone
eru látnar fullþroskast þannig að það
er eins og þær séu að springa þar sem
þær teygja sig á móti sólinni og standa út úr runnanum eins og
eyra. Þrúgurnar sem vínið er pressað úr eru ekta ítalskar þrúg-
ur, en þær nefnast Corvina sem er besta og vinsælasta þrúgan
í Veneto, Rondienella og Molanara. Þessar þrúgur eru uppi-
staðan í Amarone vínunum. Ýmsir framleiðendur bæta þó smá-
vegis af öðrum þrúgum í vínið og þá til að gera það mýkra. Vin-
sæl þrúga til þess arna er Oseletta. Þegar búið er að tína og
flokka þrúgurnar er liðið á haustið. Þrúgunum er nú raðað á
fleka og þeim svo raðað í stíur en þess þó gætt að gott bil sé á
milli flekanna. Stíurnar eru í húsum þar sem ferskt loft leikur
um. Þrúgurnar eru þurrkaðar á þennan hátt í fimm mánuði.
Þar sem veðurfarið er mjög sérstakt á þessum slóðum, í
Veneto, skammt frá Gardavatninu við rætur Lessiniijalla, og á
þessum árstíma hæfilega kalt, rotna þrúgurnar ekki þótt þær
séu dísætar. Hinn göfugi myglusveppur, Botrytis, leggst ekki á
Þjónninn, eldri kona, skenkti mér vín íglas.
Þetta var rauðvín, ilmríkt og nánast svart á
litinn. Eg dreypti á víninu ogþað lá við að
mér brygði því bragðið var með ólíkindum.
Þetta var ást við fyrsta bragð, segir Sigmar B.
Hauksson, um vínið Amarone.
Eftir Sigmar B. Hauksson
72