Frjáls verslun - 01.11.2002, Síða 41
1956
1978
1983
1988
1993
2001
2002
VIÐTAL -EÐGARNIR í BIVI VALLÁ
Feðgarnir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri BM
Vallár, og Víglundur Þorsteinsson stjórnarformaður. Fyrirtœki
þeirra er stærsta fyrirtækið á steinefnamarkaði.
Mynd: Geir Ólafsson
Sagan
Benedikt Magnússon stofnar steypustöðina BM Vallá og rekstur hefst.
Útflutningur á vikri hefst í kjölfar kaupa á Hekluvikri.
Fyrsta helluverksmiðja BM Vallár sett upp.
BM Vallá hefur einingaframleiðslu.
Afkastageta í helluframleiðslu aukin með nýrri verksmiðju. Framleiðsla
þakskífa og steinfltsa hefst.
Pípugerðin keypt. Sala á steyptum rörum hefst.
Steinprýði ehf. keypt. Múrvörur koma inn í framleiðsluna.
fótum
í vor og eignaðist þá Víglundur Þorsteinsson fyrirtækið að
fullu. Víglundur er starfandi stjórnarformaður og hefur sonur
hans, Þorsteinn, gengið til liðs við fyrirtækið. Hann gegnir nú
starfi framkvæmdastjóra BM Vallár en áður var hann yfirmað-
ur hjá Kaupthing Bank Luxembourg SA. Feðgarnir eru hér í
viðtali við Fijálsa verslun.
Ekki samkeppni Við viðskiptavini BM Vallá er stærsta fyrir-
tækið í steinefnaiðnaði á íslandi. Heildarvelta fyrirtækisins
nam 1,9 milljörðum á síðasta ári og var hagnaður fyrir
skatta 48 milljónir króna. Stefnt er að því að komast
með fyrirtækið á markað innan þriggja ára. Næststærst
í þessari grein eru Sementsverksmiðjan með um 1
milljarð í veltu og Björgun með tæpra 740 milljóna
króna veltu. BM Vallá hefur breikkað starfsemina um-
talsvert í gegnum árin en steypustöðin er og hefur ver-
ið meginundirstaða starfseminnar. Vikurútflutningur
hófst árið 1978 og framleiðsla á hellum og steinum
byrjaði fyrir 20 árum. Vægi þeirrar framleiðslu hefur
aukist jafnt og þétt. BM Vallá hefur sérhæft sig í ýms-
um forsteyptum garðaeiningum, blómakerum, bekkj-
um og fleiru. Fyrirtækið stefnir að því að auka þjónust-
una við viðskiptavini sína fremur en að veita þeim sam-
keppni og í því skyni hefur verið farið út í framleiðslu á
ýmsum húshlutum, t.d. stigum og svölum.
„Á síðasta ári var Pípugerðin keypt og á þessu ári
var franfleiðslu múrvara bætt við með kaupum á
Steinprýði ehf.,“ segir Þorsteinn Víglundsson. „Við
teljum að við getum sinnt núverandi viðskiptavinum
betur með þvi að bjóða þeim breiðara vöruval. Við
höfum verið að vinna í því að sameina framleiðslu
Steinprýði þeirri framleiðslu sem fyrir var, setja hana
undir sama gæðaeftirlit og síðan erum við að byrja að
markaðssetja þessa vöru af fullum þunga undir merkj-
um BM Vallár. Steinprýði sem vörumerki er dottið út.
Við teljum að ógrynni af tækifærum felist í notkun á
forblönduðum múrblöndum. Þær draga verulega úr óþrifnaði
á vinnustað og eiga eftir að koma að verulegu leyti í stað
hinna eldri aðferða, þ.e. að blanda á staðnum. Eg held að það
sé líka nauðsynlegt til að halda múrverki inni í byggingunni í
dag. Hæg tækniframþróun í múrverki á undanförnum árum
og áratugum hefur að mínu mati leitt til þess að aðrar og fljót-
legri lausnir, svo sem gifs, hafa rutt sér til rúms. Að mínu mati
er gæðaforskot múrveggjarins hins vegar ótvírætt og með
aukinni tæknivæðingu og stöðugri gæðum í múrnum tel ég
41