Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Page 32

Frjáls verslun - 01.03.2003, Page 32
SALA FJOLSKf LDUfyrirtækja Bræðurnir Birgir, Skúli og Vilhelm Ágústssynir, stofnendur Hölds á Akureyri, vildu að fyrirtækið hefði áfram aðalstöðvar á Akureyri. talsins. Skúli tók þá til starfa við að sinna bílaleigunni í fullu starfi og var hann forstjóri. Jafnframt bílaleigunni sáu bræðurnir um rekstur bensínstöðva Olíufélags- ins hf. á Akureyri. Höldur sf. tók til starfa vorið 1974 og voru stofn- endurnir bræðurnir þrír. Vilhelm og Birgir komu fljótlega til starfa hjá fyrirtækinu og síðar bræður þeirra, Baldur og Eyjólfur, sem hafa unnið þar með þeim í ára- tugi. Það var alla tíð óskastaða bræðranna að selja fyrirtækið til aðila sem myndu reka það áfram með aðalstöðvar á Akureyri og Höldur: TENGDASONURINN UALDI HÓPINN SAMAN Höldur ehf. á Akureyri á rætur að rekja 37 ár aftur í tímann eða til ársins 1966. Ferðaskrifstofan Lönd og leiðir var þá starfandi á Akureyri og fór að gæta eftirspurnar eftir bílum á leigu. Bræðurnir Skúli, Birgir og Vilhelm Agústssynir voru allir í föstu starfi hjá öðrum en keyptu jafnhliða því not- aða bíla, gerðu upp og seldu. Þeir voru spurðir hvort þeir væru til í að leigja út aukabílana og slógu til. Fljótlega stofnuðu þeir ísbúðina við Kaupvangsstræti 1, þaðan sem bílarnir voru afgreiddir, og svo keyptu þeir húsnæði að Tryggvabraut 14 árið 1973 þegar bílarnir voru orðnir 33 svo varð raunin þegar þeir seldu Höld um miðjan mars. Sú hugmynd fæddist snemma að Steingrímur Birgisson, tengdasonur Vilhelms sem hefur verið forstjóri fyrirtækis- ins sl. þrjú ár, myndi leiða og velja með sér hóp til kaupanna. I honum eru Þorsteinn Kjartansson endurskoðandi, sem hefur unnið hjá bræðrunum frá upphafi, Bergþór Karlsson, sem hefur unnið hjá Höldi yfir 20 ár og tekið hefur við fram- kvæmdastjórn í Reykjavík, og Baldvin Birgisson, sonur Birgis, sem starfar sem yfirflugstjóri hjá Flug- leiðum. Við söluna voru allir bræðurnir fimm starf- andi við fyrirtækið. Söluverð er ekki gefið upp. Skúli minnkar við sig vinnuna og Vilhelm hættir öllum störfum fyrir Höld. Þeir hyggjast sinna áhuga- málum sínum í auknum mæli, golfi, sumarbústað og vélsleðum, en Skúli verður áfram í stjórn fyrirtækis- ins. Birgir, sem er byggingaverkfræðingur og yngstur þeirra þriggja, mun hinsvegar fylgja eftir bygginga- verkefnum fyrirtækisins á Akureyri og Egilsstöðum. Baldur, sem varð nýlega sjötugur, mun verða áfram í hluta- starfi og Eyjólfur, sem er yngstur bræðranna, mun vinna áfram hjá nýjum eigendum. SH ÞAÐ VAR ALLA TÍÐ óskastaða bræðranna að selja fyrirtækið til aðila sem myndu reka það áfram með aðalstöðvar á Akureyri og sú varð raunin þegar þeir seldu Höld um miðjan mars. 32

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.