Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Qupperneq 48

Frjáls verslun - 01.03.2003, Qupperneq 48
GILDI flLMflNNflTENGSLfl tengsla. Hún hefur búið út almennan lista yfir 10 atriði sem sýna hvernig almannatengsl geta bætt ímynd íyrirtækja og hjálpað þeim til að verða öflugri, þekktari og ná betri árangri. „Hér að neðan eru „topp tíu“ ástæður þess að bestu fyrir- tæki heims nota almannatengslafulltrúa og deildir," segir Elizabeth. 1. Góð almannatengsl eða kynning gerir að verkum að auglýsingar fyrirtækisins verða mun árangursríkari þar sem fleiri veita þeim athygli en ella. 2. Áhrifarík beiting almannatengslatækni sér til þess að sértæk skilaboð komist til skilgreinds markhóps. 3. Góð fjölmiðlatengsl almannatengla fyrirtækisins verða til þess að fjölmiðlar segja frekar frá fyrirtækinu og leiða í ljós mun á þvi og samkeppnisaðilum. Þetta er góð kynning því almenningur trúir frekar blaðamanni en auglýsingu þó það sama sé sagt í báðum tilfellum. H. Almannatengsl er gott að nota til að auka heimsóknir og notkun á heimasíðu fyrirtækis. 5. í samanburði við hefðbundnar auglýsingar eru almannatengsl mun ódýrari leið til kynningar. 6. Það er auðvelt að mæla árangur almannatengsla og þannig sjá hvort auglýsingafénu er vel varið. 7. Góður almannatengill er snöggur að bregðast við og koma fréttum og upplýsingum til Jjölmiðla og á Netið. 8. Hafi fyrirtæki öðlast góða ímynd með aðstoð almanna- tengsla, á það auðveldara með að laða til sín gott starfs- fólk og halda því. 9. Þar sem almannatenglar hafa samband beint við við- skiptavini og stýra með því notkun á viðkomandi vöru eða þjónustu, verður það til að auka framleiðsluna þar sem meiri notkun er. 10 . Vel skipulagt almannatengslastarf getur byggt upp trausta og góða ímynd fyrirtækis. Það opnar samskipta- leiðir og gerir að verkum að viðskiptavinurinn finnur að auðvelt er að hafa samskipti við fyrirtækið, hvort sem það er vegna ánægju eða óánægju. Þannig muni við- skiptavinir beina samtölum sínum til þess fremur en í ljölmiðla ef þeir eru ósáttir og það er mikils virði. Erfitl að ná til yfirmanna Elizabeth segir að stundum sé erfitt að ná til þeirra sem raunverulega ráða fyrirtækjum og stofnunum. „Yfirleitt er um að ræða önnum kafið fólk sem gjarnan er verndað af undirmönnum sínum og riturum," segir hún. „Símtölum til æðstu stjórnenda er svarað af öðrum og oft velur ritari eftir ákveðnum reglum hverjum er hleypt áfram og hverjum vísað á aðra starfsmenn fyrirtækisins. Stundum er meira að segja gengið það langt að póstur, bæði almennur og rafrænn, er lesinn af öðrum. Þetta er gert til að æðstu stjórnendur geti einbeitt sér að sínum verkum og dýr- mætum tíma þeirra sé ekki varið til verka sem ætluð eru öðrum starfsmönnum fyrirtækisins. Þetta kerfi verður hins vegar oft til þess að gagnlegar upplýsingar fara fram hjá stjórnendunum. Oft getur verið happadrjúgt að nota óhefðbundnar leiðir til að ijúfa einangrun æðstu stjórnenda og koma réttu skilaboð- unum til þeirra. Eg get sagt frá einu slíku atviki frá þeim tíma þegar ég vann í Bretlandi. Fyrirtæki sem ég vann fyrir þurfti nauðsynlega að ná til þeirra sem voru í æðstu stjórnunar- stöðum og eigendur stórra fyrirtækja. Það gekk hins vegar hvorki né rak og því var okkur PR-fólkinu falið verkefnið. Eftir dálitla umhugsun sendum við boðskort heim til fólksins og buðum því í veislu. Yið undirbjuggum veisluna vel og gættum þess að gestir og atburðir höfðuðu vel til hópsins. Boðskortið hafði áhrif og til veislunnar komu allflestir þeirra sem við þurftum að ná til. I veislunni sáum við til þess að stjórnend- urnir hittu okkar menn og þarna sköpuðust mörg dýrmæt tengsl sem síðar áttu eftir að borga sig fyrir báða aðila.“ Óþekkt? í annað skipti fékk Elizabeth það verkefni að kynna óþekkt byggingafyrirtæki og skapa því traust meðal almennings. „Ég hafði unnið fyrir þetta byggingafyrirtæki í Norður-Englandi þegar það haslaði sér völl í suðurhlutanum. Þar var fyrirtækinu tekið fálega og lítið seldist af húsum því fólk hefur þá tilhneigingu að skipta við þekkt og traust fyrir- tæki, sérstaklega þegar um er að ræða háar tjárhæðir eins og við húsakaup. Við hófum stóra markaðsaðgerð sem byggði á markvissri tjölmiðlaumfjöllun. Við tengdum fyrirtækið við alla þá umfiöllum um hús og húsbúnað sem völ var á. Við lánuðum íbúðir fyrir myndatökur fyrir sérhæfð tímarit og sjónvarps- þætti um hús og híbýli, auk þess sem við fengum almenning til að skoða húsin þegar við lánuðum þau undir kynningar fyrirtækja sem sýndu innréttingar, húsbúnað og fleira. Það eina sem við fórum fram á var að nafn byggingafyrirtækisins kæmi fram í Jjölmiðlaumijölluninni og á kynningarefni sýnenda. Þetta varð til þess að mjög oft var fjallað um fyrir- tækið í fjölmiðlum, sérstaklega þeim sem höfðuðu beint til þeirra sem voru að velta húsakaupum fyrir sér. Fyrir vikið byggðist upp jákvæð ímynd og tiltrú á fyrirtækinu og húsin fóru að seljast. Þetta er ágætt dæmi um það hvernig markviss markaðsstefna getur hjálpað." FlOtt fyrir norðan Það er óneitanlega nokkur breyting frá því að búa í Bretlandi og flytja norður til Akureyrar en Eliza- beth er hæstánægð. „Við erum mikið fyrir útiveru og íþróttir og Akureyri er alger paradís hvað það snertir," segir hún. „Fólkið hefur tekið okkur mjög vel og við náð góðum tengslum og eignast góða vini.“ HH 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.