Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Side 55

Frjáls verslun - 01.03.2003, Side 55
' GESTflPENNI: SIGURDUR VflLTÝSSON rekstur hverrar einingar innan þess og láta sig varða ýmis atriði sem þeir horfðu ekki til áður. Það getur hins vegar verið flók- ið að setja markmið í byrjun. En nauðsynlegt er að starfsmenn sjái að tilgangur kerfisins er að bæta hag beggja aðila, þ.e. fyrirtækisins og starfsmanna þannig að þegar vel gengur hagnast báðir. Mikil- vægt er að markmiðin, sem sett eru sem grunnur fyrir árang- urstengingu, séu fyrirfram skil- greind og starfsmenn upplýstir og geti fýlgst með framgangi mála. Ekki er gert ráð fyrir að á erfiðu ári séu greiddir bónusar. Fyrir- tækið greiðir fyrirfram skilgreind föst laun sem eru þá eitthvað undir markaðslaunum það árið. En þegar vel gengur geta launa- greiðslur og hagur starfsmanna aukist verulega í takt við hagnað fýrirtækisins. fltta með hærri laun en Þorsteinn Már Æðstu stjórnendur eru þó ekki alltaf þeir launahæstu innan sinna fýrirtækja. Til dæmis var gerð grein fýrir því á aðalfundi Samherja hf. að 8 starfsmenn væru með hærri árstekjur en forstjórinn, Þorsteinn Már Bald- vinsson. Væntanlega eru það skipstjórar sem hafa fiskað vel og skilað miklum verðmætum að landi og hlotið fýrir það aukið kaup í gegnum aflahlutdeild sem er fyrirfram skilgreint bónuskerfi. Starfsmenn FBA voru á sínum tíma með skilgreint bónus- kerfi sem gaf vel í aðra hönd þegar vel gekk. Mér vitanlega hefur ekki verið tekið upp sambærilegt kerfi hjá sameinuðu félagi, né svo viðamikið kerfi hjá öðru skráðu fýrirtæki hér á landi. Starfsmenn Flugleiða lengu hlutabréf Oft hefur heyrst um flatar bónusgreiðslur til allra starfsmanna ef vel hefur gengið en stundum virðast fýrirtæki elta hvert annað með slika bónusa og ákvarðanatakan byggð á þvi hvað aðrir hafa gert. Greiðslur eru oft á bilinu kr. 75-150 þúsund á hvern starfs- mann. Flugleiðir afhentu t.d. starfsfólki sínu hlutabréf í félaginu að nafnverði 10 þúsund kr. eða rúmlega 50 þúsund kr. kaupauka að mark- aðsvirði sem kaupauka fýrir árið 2002. Landssíminn Á síðasta aðalfundi Landssíma íslands kom iram iýrirspurn frá starfsmönn- um þar sem í ljós kom að þeim þótti óeðlilegt að félagið greiddi arð til hluthafa að flárhæð kr. 2.110 milljónir án þess að almennum starfs- mönnum væri umbunað í leiðinni fýrir góðan árangur fýrirtækisins. Fjármálafýrirtæki í Bandaríkjunum hafa tíðkað að greiða nýútskrifuðum starfs- mönnum frekar lág árslaun en bónusar eru ákveðnir í árslok og geta þá numið margfeldi af grunnlaunum. Fyrirkomulagið hefur oft á tíðum verið handahófskennt og mikil spenna myndast þegar starfsmenn eru kallaðir fýrir sína yfirboðara og þeim greint frá bónus- greiðslum ársins. Tveir umdeildir starfslokasamningar Ekki er hægt að ljúka skrifunum án þess að minnast aðeins á tvo erlenda starfslokasamninga. Ný- verið skýrði Royal and Sun Alliance frá því að hinn brottrekni forstjóri, Bob Mendelson, hefði við starfslok fengið 2.44 milljónir punda (um 300 milljónir króna) á síðastfiðnu ári. Þetta er gert þótt fé- lagið hafi þurft að segja upp u.þ.b. 12.000 starfmönnum, selja eignir og ítrekað ekki staðið við gerðar áætlanir. Tíðindin eru örugglega til þess falfin að vekja reiði hluthafa sem nutu satt að segja ekki góðrar ávöxtunar, en hlutabréf RSA lækkuðu úr rúm- lega $24 í tæplega $7 á sl. 12 mánuðum. Sjá meðfýlgjandi graf, en þar kemur fi'am samanburður við önnur tryggingafélög. Hluthafar Vivendi Universal eru heldur ekki hamingju- samir með bónusa og greiðslur til J.M. Messier en bónusar hans fyrir 2001 voru 250% af reglulegum launum. Þetta var þrátt fyrir að félagið setti „tapmet" í Frakklandi eða 13,6 millj- arða evra. Félagið sló síðan sitt eigið met með því að tapa 23,3 milljörðum evra á síðastliðnu ári. Brottrekni forstjórinn, sem aðeins starfaði fýrrihluta síðastliðins árs, fékk þó 10% launa- hækkun frá árinu áður eða 6,1 milljón Bandaríkjadala, eða um 480 milljónir króna. H3 TIL DÆMIS VAR gerð grein fyrir því á aðalfundi Samherja hf. að 8 starfsmenn væru með hærri árstekjur en forstjórinn Þorsteinn Már Baldvinsson. NÝUERIÐ SKÝRÐI R0YAL AND SUN ALLIANCE frá því að hinn brottrekni forstjóri, Bob Mendelson hefði við starfslok fengið 2,4 milljónir punda Cum 300 milljónir króna] á síðastliðnu ári. Þetta er gert þótt félagið hafi þurft að segja upp u.þ.b. 12.000 starfmönnum, selja eignir og ítrekað ekki staðið við gerðar áætlanir. 55

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.