Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Side 78

Frjáls verslun - 01.03.2003, Side 78
MSMmm&í Fyrir um það bil 10 árum kom Björn Leifsson fram með þá hugmynd að byggja sérstaka Heilsu- og sundmið- stöð í Laugardal, tengda Laugardalslauginni. Nú eru framkvæmdir við bygginguna langt komnar og er stefnt að opnun 2. janúar 2004. Hugmyndafræðin er sú að búa til samspil inni- og útilaugar ásamt fullkominni heilsumiðstöð með Ijölbreyttri heilsurækt, heilsutengdri þjónustu fyrir borgarbúa og ferðamenn og bjóða upp á áhugaverðar nýjungar. Þannig munu viðskiptavinir Lauga geta stundað heilsurækt, farið í sund, fengið nudd hjá sjúkraþjálfara, hársnyrtingu, borðað heilsumat og fengið heilsudrykki, allt á sama staðnum. Til staðar verða læknar, sjúkraþálfarar, nuddarar og annað faglært fólk sem vinna mun saman sem teymi eftir þörfum og geta þannig tekið á móti fólki með heilsufarsleg vandamál og bætt úr þeim. Eigendur Þann 26. nóvember 2002 var undirritaður sam- starfssamningur á milli Reykjavíkurborgar og Laugahúss ehf. um samstarf og samvinnu vegna framkvæmda við Laugar. Eigandi Laugahúss er Stofn íjárfestingafélag ehf., en það félag er í jafnri eigu Lauga ehf. og Nýsis ehf., sem mun sjá um fasteignarekstur, framkvæmdastjórn, útleigu rýma, kynningar og markaðsstarf ásamt ýmissi sameigin- legri þjónustu í Heilsumiðstöðinni en World Class mun starfrækja heilsuræktina og baðstofuna. Aðstaðan Húsnæði Heilsumiðstöðvarinnar verður 7.150 fm á þremur hæðum. World Class mun starfrækja heilsu- ræktarmiðstöð í um 5.100 fermetra rými og verður allur búnaður af vönduðustu gerð. Um það bil 2.000 fermetra rými, sem skiptist á allar hæðirnar þrjár, verður leigt út fyrir aðra heilsutengda starfsemi. A fyrstu hæð verður vel útbúinn tækjasalur, aðgangur í sundlaugarnar, þrír leikfimisalir og veitingastaður, íþrótta- vöruverslun og lyijaverslun. Einn leikfimisalur, um 200 fm að stærð, verður útbúinn sem fullkominn funda- og ráð- 78

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.