Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Page 89

Frjáls verslun - 01.03.2003, Page 89
FÓLK Eftir Vigdisi Stefánsdótlur V Eg hóf störf hjá Öryggis- miðstöð íslands fyrir tæpu ári síðan og stýri þar markaðsmálum," segir Þórey Ólafsdóttir, markaðs- stjóri hjá Öryggismiðstöð Islands. „Eg stýri m.a. heima- síðunni okkar www.oi.is og öllu því sem tengist imynd fyrirtækisins. Þar að auki hanna ég töluvert af okkar auglýsingum og kynningar- efni sjálf en það gerir starf mitt mjög lifandi og skemmti- legt. Samstarfsfólkið á nú líka sinn þátt í því að gera starfið svona skemmtilegt, en í sölu- og markaðsdeild- inni starfa ég með 12 frá- bærum reynsluboltum sem allir hafa mikla reynslu og þekkingu á öryggismálum. Starfsandinn í íýrirtækinu er mjög góður, enda er fyrirtæk- inu vel stýrt samkvæmt nútíma stjórnunarháttum þar sem ábyrgðinni er dreift og allir vinna að sama markmiði, meðalstarfsaldur er langur hjá okkur og mjög virkt starfsmannafélag heldur öllum í góðum gír.“ Öryggismiðstöð íslands er framsækið öryggisfyrir- tæki sem sérhæfir sig í sölu þjónustu og vöruþróun. Gróf- lega má skipta starfseminni upp í þijá flokka, öryggis- gæslu, öryggiskerfi, s.s. inn- brotaviðvörunarkerfi, myndavélaeftirlitskerfi, að- gangsstjórnunarkerfi og þjófavarnahlið, og að lokum brunavarnir. Sem dæmi má nefna að við erum með brunaviðvörunar- og slök- kvikerfi, slökkvitæki o.fl. Það er lika gaman frá því að sega að Öryggismiðstöð íslands er eina fyrirtækið á landinu sem hefur viðurkenningu Siglingastofnunar, Det Nor- ske Veritas og Lloyd’s Reg- ister til að annast árlega skoðun og prófun eldvarna- og slökkvibúnaðar í skipum. ,Áður en ég hóf störf hjá Öryggismiðstöðinni vann ég ein átta ár við ferðaþjónustu," segir Þórey. „Eg byijaði hjá Flugleiðum innanlands árið 1996 og gegndi þar hinum ýmsu störfum. Þá rak ég söluskrifstofu Flugfélags íslands í Hafnarstrætinu um tíma, sá um markaðssetn- ingu og sölu á hinum sívin- sælu Gjugg-ferðum Flug- félagsins og undir lokin gegndi ég stöðu vefstjóra og sá um heimasíðu Flugfélags- ins. Þessi ár voru auðvitað „Starfsandinn í fyrirtækinu er mjög góður, enda er fyrirtækinu vel stýrt samkvæmt nútíma stjórnunarháttum þar sem ábyrgðinni er dreift," segir Þórey Guðmundsdóttir, markaðs- stjóri hjá Öryggismiðstöð íslands. Þórey Olafsdóttir, Öryggismiðstöð íslands og þjónustu á heildar- lausnum í öryggismálum, hvort heldur sem er fyrir fyrirtæki eða heimili. Fyrir- tækið var stofnað 1995, sam- einaðist Eldverk og Vöru- tækni árið 2001 og hefur frá því verið leiðandi á markaðn- um hvað varðar vöruúrval, mjög skemmtileg, ég var að vinna með hæfileikaríku og skemmtilegu fólki og fékk mikið af tækifærum." Börnin og ijölskyldan skipta Þóreyju miklu máli. „Hvað mína persónulegu hagi varðar,“ segir hún, „þá er ég gift Steinari Sigurðs- syni framkvæmdastjóra og eigum við saman 3 börn, Önnu Margréti, Andra Má og Arnar Má. Börnin og ijöl- skyldan mín er svo auðvitað mitt helsta áhugamál og því reynum við alltaf að nota þann tíma sem við höfum aflögu til að gera eitthvað saman. Við ferðumst mikið innanlands og utan, förum í sund og mikið af göngu- og hjólatúrum. Nú, svo reynir maður að skjótast í líkams- ræktina í hádeginu en ég verð þó að játa að það er nú meira svona til að halda mér í formi.“ 53 89

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.