Frjáls verslun - 01.11.2004, Qupperneq 9
Sala nýbygginga
Valhöll leggur sérstaka áherslu á sölu nýbygginga og hefur gert það frá
stofnun fyrirtækisins. „Ég held að segja megi að við séum með töluverða
yfirburði fram yfir flesta aðra við sölu á nýbyggingum. Við erum með tölu-
verðan fjölda byggingameistara sem hafa haldið tryggð við okkur frá upp-
hafi og hafa verið eingöngu hjá okkur. Við erum eina fasteignasalan sem
heldur úti sér vef um nýbyggingar, nybyggingar.is sem er mjög ítarlegur
vefur. Til viðbótar má benda á vefsíðu fyrirtækisins, valholl.is. Vefurinn
nybyggingar.is er sérstaklega góður, settur allur fram á myndrænan
hátt, grunnteikningar, skilalýsing og allar upplýsingar sem kaupandi þarf.
Þar er hægt að varpa fram spurningum sem við leggjum áherslu á að
svara fljótt og vel. Heimsóknir eru ti'ðar á þennan vef, frá yfir 100 upp í
3-400 á hverjum degi.
Góðar og ítarlegar upplýsingar geta oft skipt sköpum þegar kaupendur
eru að taka ákvörðun um hvort kaupa eigi nýbyggingu eða notaða eign og
við teljum okkur sinna þvi' sérstaklega vel. „Það sést best á þvi' að þegar
við höfum verið með blokkir í sölu ásamt annarri fasteignasölu, höfum
við iðulega selt a.m.k. % hluta fbúða í þeim. Vefurinn nybyggingar.is var
settur á stofn fyrir tveimur árum og hefur stöðugt verið endurbættur frá
uppsetningu hans.
Valhöll leggur sérstaka áherslu á sölu nýbygginga
og hefur gert það frá stofiiun fyrirtækisins.
Atuinnuhúsnæði
Valhöll er með sérdeild um atvinnuhúsnæði og sölustjóri hennar er
Magnús Gunnarsson. Þar hafa mörg af stærstu fyrirtækjum landsins
fengið markvissa og góða þjónustu og ráðgjöf við sölu og kaup fasteigna.
Einnig er mikið leitað til okkar um verðmat á stærra og minna atvinnu-
húsnæði. Verð og leiguverð eru mjög misjafnt eftir staðsetningu og
ástandi eignar.
Greinilegur kippur hefur komið í sölu atvinnuhúsnæðis á undanförnum
6-8 mánuðum. Orsökin gæti verið sú að vextir hafa lækkað talsvert sem
gefur fyrirtækjum meira svigrúm. Einnig hefur verð á atvinnuhúsnæði
staðið í stað lengi og aukinn hagvöxtur hefur verið viðvarandi.
Sala hjá Valhöll hefur verið mikil að undanförnu, bæði í notuðu húsnæði
sem nýbyggingum. „Með auknu fjármagni, sem flætt hefur óhindrað í
haust með nýjum fasteignalánum bankanna, hefur salan aukist mikið.
Munar þar mest um að vextir fasteignalána hafa lækkað mikið. Það er
oft þannig á íslandi að þegar hlutir breytast, þá gera þeir það svo um
munar á mjög stuttum ti'ma. Mér finnst það vera nokkuð varasamt að
veita 100% lán en 90% lánin geta verið í lagi. Þeim þarf þó að fylgja góð
ráðgjöf og að fólk sé vel upplýst um alla þætti málsins. Upp á síðkastið
virðist fólk stundum ekki spá nóg í það hvað hlutirnir kosta, heldur miklu
frekar hver greiðslubyrðin er. Þannig að hætta er á að verðskyn landans
brenglist eitthvað í svona látum."
Eigendur Valhallar, Ingólfur Gissurarson, löggiltur fasteigna-
sali, og Bárður Tryggvason sölustjóri.
Glæsilegt sérhannað skrifstofuhúsnæði Valhallar að Síðu-
múla 27.
Framtíðin - IMýjar íbúðir í sölu
„Það er mjög bjart framundan hjá okkur. Fljótlega á næsta ári er Valhöll
að fá til sölu íbúðir í nýjum fjölbýlishúsum í Norðlingaholti, raðhús við
Elliðavatn, iTiúðir í nýju fjölbýlishúsi í 101, eignir í Kórahverfi í Kópavogi
ásamt fleiri eignum.
Þann 1. október sl., tóku gildi ný lög um starfsemi fasteignasala og
breyta þau töluvert starfsumhverfi fasteignasala og auka mikið ábyrgð
þeirra, en fyrir var ábyrgðin þó mikil. Við tökum þessum breytingum
fagnandi og eru vel í stakk búin til þess. Metnaður okkar hefur ávallt verið
að viðhafa örugg og vönduð vinnubrögð þar sem hagsmunir seljenda og
kaupenda eru hafðir að leiðarljósi.
Það verður fróðlegt að fylgjast með þvi' á næstu mánuðum hve vel
nýjum lögum verður fylgt eftir og hvernig fasteignasölur taka á breyttum
lögum. Menn verða að gæta þess að fasteignir eru aleiga hvers og eins
og eru langverðmætustu eignir á landinu.
Við höfum þá trú að í framtíðinni verði fasteignasölur færri en
stærri. í þessu nýja lagaumhverfi og miðað við þá miklu ábyrgð sem
fasteignasalar bera er mjög mikilvægt að fólk í fasteignahugleiðingum
leiti til traustra, öruggra og reynslumikilla aðila sem við teljum okkur
svo sannarlega vera.HD
VALHÖLL
FASTEIGNASALA
Síðumúla 27 - 105 Reykjauík
Sími: 588 4477 • Fax: 588 4479
Opið 9 -17.30 virka daga • Lokað um helgar.
www.valholl.is • www.nybyggingar.is
9