Frjáls verslun - 01.11.2004, Blaðsíða 74
Camus-fjölskyldan dregur enga dul á að sérstaða Camus-koníaks byggir á flóknum blöndum með háu hlutfalli af koníaki frá
Borderies-svæðinu.
Drykkur ilmsins
Globus hefur flutt inn koníak frá franska framleiðandanum Camus í 27 ár.
Um fjölskyldufyrirtæki er að ræða sem framleitt hefur koníak frá árinu 1863.
Textí: Svava Jónsdóttír
Camus-lyrirtækið erstærsta konlaksfyrirtækið sem rekið
er af einni ijölskyldu,“ segir Kári Ellertsson, sölu- og
markaðssljóri hjá Globus. Jean-Baptiste Camus stolhaði
fyrirtækið árið 1863.
Að sögn Kára er hver einasta tegund, sem framleidd er hjá
fyrirtækinu, einstök. „Nú stýrir fimmti ættliður Ijölskyldunnar
fyrirtækinu og hafa blöndunarmeistarar hverrar kynslóðar
skapað sitt eigið koníak í einhveijum gæðaflokki og er þeim
stíl síðan við haldið af komandi kynslóðum. Þetta er drykkur
angans. Það er mikið lagt í þessa vöru.
Kenning Camus er sú að til að búa til besta koníak í heimi
þurfi að búa yfir sérstakri reynslu og kunnáttu sem aðeins er
hægt að öðlast með þrotlausri vinnu margra kynslóða mann
fram af manni. Eða eins og Camus-ljölskyldan orðar það:
„Það þarf langafa, afa og föður sem af þolinmæði helga lif sitt
þeirri list að blanda saman ólíkum og flóknum eiginleikum
mismunandi árganga af koníaki frá mismunandi svæðum
svo að árgangurinn verði bragðgott, flókið og milt koníak í
hveijum einstökum gæðaflokki. Flaska af Camus-koníaki í
Myndir: Geir Ólafsson
hágæðaflokki getur verið blanda allt að 200 einstakra tegunda
koníaks frá mismunandi svæðum og aldri. Galdurinn á bak við
gerð hágæðakoniaks er að eiga nógar birgðir af áratugagömlu
koníaki sem hefúr verið geymt við bestu hugsanlegu aðstæður
ásamt þeirri ástriðu og kunnáttu Ijölskyldunnar sem borist
hefur frá kynslóð til kynslóðar.“
Aðeins það vín sem eimað er úr hvítvínsþrúgunum Ugni
Blanc, Colombard og Folle Blanche frá víngörðum innan
Cognac-héraðsins getur borið nafnið Cognac. Þar að auki
verður að hafa í heiðri tækni og hefðir sem gengið hafa í erfðir
í margar kynslóðir.
HÚFUÐSTÖÐVAR Höfuðstöðvar Camus eru í bænum Cognac
sem staðsettur er í hjarta héraðsins. Fjölskyldan á vinekrur á
aðalsvæðunum - Borderies, Grand Champagne og Fine Champ-
agne. „Camus-ljölskyldan dregur enga dul á að sérstaða Camus-
koníaks byggir á flóknum blöndum með háu hlutfalli af koníaM
frá Borderies-svæðinu. Það er minnsta svæði koníakshéraðsins
og vín þaðan eru eftirsótt þar sem Borderies-koníak gefur þyngd
74