Frjáls verslun - 01.11.2004, Page 116
Vín er ekki fjárfesting hér á Islandi. Vín er hins vegar
góð fjárfesting hvað varðar ótal ánægjustundir og
skemmtilegt tómstundagaman.
GÓÐ HUGMYND Á NÝJU ÁRI
Leggðu
grunn að
vínkjallara
Hvemig væri að hefja nýtt ár á því að leggja grunninn að
vínkjallara? Vínkjallari er nú kannski heldur misvísandi orð.
Réttara væri að ijárfesta í nokkmm góðum flöskum af víni og eiga heima.
Textí: Sigmar B. Hauksson
Versti geymslustaðurinn fyrir léttvín er eldhúsið. Vín þarf
að geyma á stað þar sem hitastigið er sem jafnast Þar sé
dimmt og að flöskumar verði fyrir sem minnstu áreiti.
Verst er ef flöskumar hristast td. ef þær em geymdar í nágrenni
hurðar eða lyftu sem skapar titring. Frábært er, ef unnt er, að
geyma vínið á frekar köldum stað eða við u.þ.b. 8 til 10° C. Ef
það er ekki unnt þá er mikilvægast, eins og áður sagði, að
hitastigið sé sem jafnast Ef nokkur kostur er þá þarf hitastígið
helst að vera undir 14° C. Vín sem geymt er við hærra hitastig
þroskast mun hraðar. Þá er nauðsynlegt að halda bókhald yfir
vínið. Þ.e.a.s. að skrá hveija flösku og skrifa svo lýsingu á víninu
þegar það er dmkkið; bragð, ilm og önnur einkenni. Það er
vitaskuld álitamál hvað er hæfilegt að eiga mikið af víni heima.
Fyrir venjulega fjölskyldu sem hyggst aðeins eiga hæfilegt
magn heima til eigin nota ættu 40 - 50 flöskur að vera nóg.
Hvaða vín á að geyma? Þumalfingursreglan er sú að kaupa
frekar dýrara og vandaðra vin, gjarnan frekar ungt vín sem þarf
að geyma í nokkur ár; eða tvö ár og lengur. Rauðvín þarf að öllu
jöfnu lengri geymslutíma en hvítvín. Ljómandi er að kaupa gott
kampavín og geyma, og einnig árgangspúrtvín.
Mikil velta er núna í Vínbúðum ÁTVR, - vín fara og koma.
Það er því rétt að hafa augun opin og fylgjast með því sem tíl
er og kaupa nokkrar flöskur, helst þijár tíl sex flöskur, sem
áhugaverðar em. Þeir sem fara utan ættu að hafa augun opin.
í fríhöfnum em góð vín oft höfð á tílboðsverði tíl að laða við-
skiptavinina að. Þetta geta oft verið árgangskampavín og stór
hallarvín frá Bordeaux. Einnig er vel þess virði að heimsækja
víndeildir stórmarkaðanna, t.d. í London og Kaupmannahöfn.
Þó mest sé þar af ódým borðvíni má iðulega finna stór og
vönduð vin á frábæm verði. Þessi vín em höfð á afar hagstæðu