Almanak alþýðu - 01.01.1930, Blaðsíða 24
og smátt með, jafnaðarstefnunnar, eru ekki
annað en drög, tekin saman meðfram til þess
að koma mönnum af stað til þess að leita sér
frekari fræðslu um kenningar þeirra og starf-
semi, en jafnframt til þess að láta hinum, sem
ekki hafa tök á að afla sér ýtarlegri þekkingar,
nokkra úrlausn i té. Það má kallast skylda
hvers jafnaðarmanns og alþýðusinna að reyna
að öðlast sem mest kynni af boðskap þeirra
og leiðbeiningum um lausnaAaráttu alþýðu-
stéttarinnar, stéttabaráttuna, hlutverk hennar
og sigurvonir, enda er ekki annað ráð vássara
tll þess að afla sér dugandi vopna i úrslita-
baráttunni, er nú er hvarvetna liafin, við höfuð-
fjanda allrar alþýðu allra landa og erkiévin
þessara ódauðlegu forystumanna hennar.
H. H.
Myndirtiar
ef Marx og Engels, sem fylgja ineð riti þessu,
eru teknar eftir höggmyndum, er sýndar voru
á sýningu í Beriín í haust, sem Leið. Þær eru
gerðar af þýzkum jafnaðarinanni, Anatole Du-
bois, og þykir hann hafa náð mjög vel hinu
sérkennilega og þróttmikla i svip þessara miklu
forvígismanna alþýðminar, enda segja gamlir
flokksmenn, sem séð hafa þá fólaga, að mynd-
irnar séu mjög Ukar.
20