Almanak alþýðu - 01.01.1930, Blaðsíða 42
1
7. Radióvitar.
Samþykt var að fela þlngmönnum flokksins
að vinna að því þegar á næsta þingi, að kom-
ið verði upp radíóvitum í sambandi við Ijósa-
vitana á þeim stöðum á ströndum landsins, sem
hættulegastir eru taldir sjófarendum.
8. SJúvarntvcHsmúl.
Eftirfarandi tillögur um sjávarútvegsmál voru
samþyktar í einu hljóði:
„I. FiskimálaráVuneyti: Stofnað verði sérstakt
fiskimálaráðuneyti, er standi undir atvinnu-
málaráðherra. Undir það heyri: fiskirann-
sóknir, væntanlegar vélfræði- og byggingar-
leiðbeiningar á fiskibátum, fiskikiak, til-
raunastöðvar fyrir hagnýtingu afla og nýrra
veiðarfæra, markaðsfréttir og annað það,
er að sjávarútvegi lýtur.
Fiskimálaráðuneytið gefi út mánaðarrit
eða vikublað, er ieggi sérstaka áherzlu á
að kynna mönnum nýjungar í veiðiaðferð-
um og hagnýtingu aflans, svo og annað
það, er sjávarútveginum má að haldi koma.
Fiskifélagið, eins og það nú er, sé lagt
niður, en fiskideildirnar starfi áfram undir
eftirliti fiskimálastjóra, og fái fjórðungs-
sambönd nokkur fjárráð.
II. Hra'öfrystihús. Ríkið byggi svo fljótt, sem
unt er, hraðfrystihús, sem rekin séu með
liku fyrirkomulagi og síldarverksmiðja rik-
isins, minst eitt í hverjum landsfjórðungi.
III. Fiski8amlag. Lögboðið verði fiskisamlag, er
hafi einkasölu á útfluttum fiski fyrir alt
landið.“
38