Almanak alþýðu - 01.01.1930, Blaðsíða 21
framkomu hans opinberlega og hversdagslega,
er bersýnilegt, að Marx hefir verið sannarlegt
mikilmenni. Samt hefir örbirgðin lamað hann
og sjálfsagt stytt aldur hans að mun, og er þó
ekki að vita, nema hin bágu kjör hans hefðu
riðið honum að fullu löngu fyrr, ef hann hefði
ekki átt pví láni að fagna að hljóta vináttu
manns, sem hafði þjóðfélagsaðstöðu efnastétt-
arinnar og gat þess vegna rétt hjálparhönd,
f)egar í raunir rak, en það var Engels félagi
hans.
Friedrich Engels fæddist í borginni Barmen í
Rínarhéruðum Þýzkalands 28. nóvember 1820
og var sonur verksmiðjueiganda þar. Hann
lagði stund á verzlunarnám, en starfaði þegar
ó námsárunum við tímarit „unga Þýzkalands",
bókmentastefnu, er flutti róttækar og jafnaðar-
stefnusinnaðar skoðanir. Á herþjónustuárum sín-
um í Berlín komst Engels í kynni við hina rót-
tækari Hegels-sinna, og af þeim togum er
spunnið heimspekirit hans um Schelling og op-
inberunina, er kom út um sama leyti og hann
komst í kynni við Karl Marx. Upp úr þessu
fór hann til framhaldsnáms í skrifstofum föður
síns við verksmiðju hans í Manchester í Eng-
landi. Þróun iðnaðarins, sem þar i Englandi
var lengra á veg komin en i Þýzkalandi, og
félagsmálabaráttan, sein þar af leiðandi var
einnig orðin magnaðri þar, drógu huga Engels
að rannsókn á þjóðarhögum og félagsmálum,
og starfaði hann þar við tímarit Owens-sinna
og Chartista. Af þessum rótum er runnið hið
fræga rit hans: „Die Lage der arbeitenden
2
17