Almanak alþýðu - 01.01.1930, Blaðsíða 27
20 verklýðsfélögum innan Alþýðusambandsins.
Auk þess voru mætlir sem gestir 13 fulltrúar
frú 8 félögum utan sambandsins. Fulltrúar frá
utansambandsfélögum höfðu málfrelsi og til-
lögurétt, en ekki atkvæðisrétt.
Hér skal skýrt frá nokkrum belztu málum,
sem rædd voru á ráðstefnunni og úlyktanir
gerðar um.
1. Óháð verklýðssamband.
Það mál, sem mestur skoðanamunur var um
á ráðstefnunni, var stofnun sérstaks verklýðs-
sambands, er óháð væri Alþýðuflokknum. Hafði
nokkuð verið rætt um það bæði i blöðum og á
félagsfundum. Meiri hluti undirbúningsnefndar
lagði fram svo’iljóðandi tillögu:
„Nefndin leggur til, að ekki verði stofnað
verklýðssamband óháð pólitiskum flokkum."
Þessi tillaga var sainþyki með atkv. 39 full-
trúa, en 13 greiddu atkv. á móti. Að baki þeim
39 fulltrúum, sem atkv. greiddu með tillögunni,
standa um 3600 félagsbundnir verkamenn og
verkakonur, en að baki hinuin um 890.
2. Styttlng vinnutimans.
Eftirfarandi ályktun var samþykt með sam-
hljóða atkvæðum:
„Krafan um styttri vinnutíma hlýtur ávalt að
verða víðtækari með vaxandi tækni vélaiðju og
afkasti. Þegar atvinna verkamanna minkar, skal
þess einnig sérstaklega gætt, að almennur
vinnutími verði styttur að sama skapi, svo að
vinnan jafnist betur yfir verkamennina. Fyrst
um sinn skal kept að því að koma í fram-
23