Almanak alþýðu - 01.01.1930, Blaðsíða 32
Birtist hér útdráttur úr skýrslu forseta, Jóns
Baldvinssonar:
Skýrsla torseta,
„Sambandsstjórn sú, er kosin var á sambands-
þingi 1928, hefir, að undanteknu því, sem skift
er störfum með henni með sjálfri kosningunni,
skift með sér verkum svo, að Pétur G. Guð-
mundsson hefir annast ritarastörfin, en Stefán
Jóh. Stefánsson liefir haft gjaldkerastörfin með
höndum.
Þau 2 ár, sem liðin eru, síðan þessi stjórn var
kosin, hafa að vísu verið viðburðarík, en þó
mun ég hér að eins gefa skýrslu um störfin
síðara árið sakir þess, að ég á aukaþinginu
1929 gaf skýrslu um fyrra árið.
Á síðara árinu fóru fram bæjarstjórnarkosn-
ingar um land alt, sem voru mjög þýðingar-
miklar fyrir Alþýðuflokkinn vegna þess, að lög-
tekið var á alþingi 1929, að kosningarrétt
skyldu allir hafa 21 árs og eldri, og jafnframt
afnumið, að þeir, sem stæðu í skuld fyrir ó-
greiddum fátækrastyrk, væru sviftir kosning-
arrétti. Það var gömul krafa Alþýðuflokksins,
sem hér var loks tekin til greina, krafa, sem
hafði þegar komið fram á fyrstu þingum, er
flokkurinn átti fulltrúa á. Það var og fyrir at-
beina flokksins, að þessi merkiiega breyting
náði að verða að lögum.
Bæjarstjórnarkosningarnar voru háðar af
mesta kappi af öllum flokkum, og var það
vegna þess, að nú voru bæjarstjómimar kosnar
í heild til 4 ára, svo að með þeim hlaut meiri
hlutinn að fá full og óskoruð völd yfir málum
28