Almanak alþýðu - 01.01.1930, Blaðsíða 82
öllum pólítískum flokkum og tekur því á móti
hjálp og aðstoð allra þeirra, sem vilja styrkja
það, enda hafa ýmsir ágætismenn, eins og t. d.
Friðþjófur Nansen, verið ótrauðir starfsmenn
þess.
Fólagatalan er nú alls, um allan heim, 15 16
milljónir, og sú hjálp, er A. S. V. hefir miðlað
bágstöddum verkalýð, nemur nú um 80 85
milljónum króna.
Pegar, er íslandsdeild A. S. V. var stofnuð
í sumar, barst henni verkefni i hendur, er
verkamenn í Krossanesi urðu að Ieggja út í
verkfall til að rétta hluta sinn gagnvart hin-
um erlenda kúgara sinum. Kom hjálp A. S. V.
'í. í góðar þarfir og hefir án efa átt sinn þátt
í sigrinum.
Nú eru dcildir A. S. V. á fslandi í fimm
lielztu kaupstöðunum.
Ótal verkefni bíða A. S. V. hér á landi.
Skipskaðar, snjóflóð, eldgos, jarðskjálftar svifta
fólk eignum og húsnæði.
Vegna fátæktar og anna eru börn verkalýðs-
ins ofurseld uppeldisleysi götulífsins. Or þvi
eiga bamahæli A. S. V. að bæta eftir megni.
Hin stórkostlegasta kreppa, sem sögur fara
af, herjar nú allan auðvaldsheiminn og er þegar
skollin vfir fsland. Slíkri kreppu hlýtur að
fylgja áköf tilraun auðvaldsins til þess að koma
öllu tapinu á bak alþýðunnar með því að lækka
kaup hennar. Par af leiða kaupdeilur og senni-
lega verkföll, sein einasta nauðvörn verkalýðs-
ins.
Það má því ekki seinna vera, að A. S. V. er
78