Almanak alþýðu - 01.01.1930, Blaðsíða 28
kvæmd 8 stunda almennum vinnudegi og 7
stunda vinnudegi fyrir unglinga og við alla
erfiða vinnu og heilsuspillandi, að afnema næt-
urvinnu og takmarka eftirvinnu, eftir pví sem
frekast er unt, og koma fram hálfsmánaðar-
sumarfríi allra verkamanna með fullu kaupi.
— En pegar á næsta ári skal unnið að:
a. 9 stunda vinnudegi í allri almennri vinnu í
kaupstöðum, og skal pví pegar komið á, par
innifalin kaffihlé, sein greitt sé fyrir.
b. 8 stunda vinnudegi í verksmiðjum.
c. 8 stunda vinnudegi við alla bæjarvinnu í
kaupstöðum, og skal pví pegar komið á, par
sem fulltrúar verkamanna ráða í bæjar-
stjórnum.
d. Afnámi allrar hafnarvinnu að næturlagi í
kaupstöðum, að undantekinni síldarvinnu og
vinnu við bátaútveg, sem sérstakar reglur
verði settar um.
e. 8 stunda hvíld á línuveiðurum og línubátum,
sem liggja úti, og fyrir konur pær, sem við
línu vinna í landi.
f. Að fá samfleytta 8 stunda hvíld á hverjum
sólarhring og minst 2 heilla sólarhringa
hvíld á hverjum mánuði fyrir bifreiðastjóra.
g. Hafnarfrí sjómanna við allar veiðar.
h. Hálfsmánaðar-sumarfrí með fullu kaupi ár-
lega fyrir alt fastráðið verkafólk.
i. 1. maí sé almennur frídagur."
Þessi ályktun sampykt í einu hljóði:
3. öryggi verkalýðsins,
„Til öryggis lífi og limum verkalýðsins vlð
24