Morgunn


Morgunn - 01.12.1997, Page 9

Morgunn - 01.12.1997, Page 9
Ritstjórarabb þessi þróun er unnin eða hversu mikla hönd í bagga þeir sem næstir okkur eru handan sviðs, hafa í sambands- möguleikunum. Það er þó ljóst að þeir, eða þá einhverjir eða eitthvað þeim enn æðra, hafa stærsta hlutann að segja í þeim möguleikum sein eru og hafa verið á því að hafa samband við heiminn fyrir handan. Það er því, eins og áður segir, afskaplega mikil einföldun og allt að því skammsýni að vera að agnúast út í sálarrannsóknastefn- una og sálarrannsóknafélögin íyrir það að sannanir og íyrirbæri séu ekki í sama farvegi og áður nú um stundir. Menn, sem tala um slíkt eru, að mínu mati, með, að því er virðist, nokkuð einhæfa yfirsýn og gleyma að taka með í reikninginn það hversu mikið þetta byggist á þátttöku þeirra fyrir handan og frumkvæði. Nútíma spíritismi hófst að frumkvæði þeirra fyrir handan og ég sé ekki betur en að þeir liafi stjórnað því sem innan hans hefur gerst, hvað sambönd og sambands leiðir varðar. Hlutverk sálarrannsóknafélaga er að mínu viti, að miklu leyti falið í að spila með, taka á móti og miðla, styðja og þjálfa þau verkfæri sem í boði eru. Ég hygg að það séu ekki afskaplega margir miðlar t.d., sem beinlínis hafa verið „búnir til“ ef svo mætti segja, af sálarrannsókna- félögum. Farvegur þeirra er, að því er mér virðist, yfirleitt orðinn til annarsstaðar og annarsstaðar frá kominn, þ.e. í meðfæddum hæfileikum eða stuðningi að handan. Það er eins og Hinder Emrich kemur að í áður nefndri grein sinni, að rannsóknir á litsýnarhæfileikum heilans benda sterklega til þess að í honurn sé að finna stöðvar víðtækari skynjunar en við gerum okkur nokkra hugmynd um í dag. Mér finnst það einmitt geta bent til skýringar á því t.d., þegar fólk hefur farið til miðla og beðið um að sér væri „lokað,“ eins og það hefur verið kallað, þ.e. ef fólk MORGUNN 7

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.