Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 68
Ljósverur: englar eóa anclar?
unar voru transmiðlar aðal áhugaefni Qölmiðla
fyrir 10 árum síðan. Það leið varla sá dagur að um
A. þá birtist ekki grein í einhverju stærri dagblað-
anna, heimildamynd eða sýning í sjónvarpi. Það sama átti
við um kvikmyndaiðnaðinn. Hollywood framleiddi ýmis
konar bombur um efnið, með myndirnar Ghost og Always
í fyrsta sæti vinsælda í margar vikur.
Nýjasta bomban í dag er myndin Michael, englasaga
með John Travolta í aðalhlutverki. í sjónvarpi er nýjasti
smellurinn Touched by an angel. Jafnvel Life Magazine
fylgdi í kjölfar Newsweek og Time og birti nýlega for-
síðugreinar um nýjar vinsældir engla og dásamleg áhrif
þeirra á líf venjulegs fólks.
„Englar standa fyrir persónulega umhyggju Guðs fyrir
sérhverju okkar,“ segir séra Andrew Greeley sagnfræð-
irithöfundur. Reyndar sést af mörgum frásögnum að nær-
vera þeirra endurvekur hjá fólki loga vonar og með
blíðlyndi sínu virðast þeir endurnýja tengsl okkar við
guðdóminn. Auk þess skapa englar öruggan stað þar sem
fólk getur tjáð reynslu sína og talað um andlega leit án
þess að setja sig í guðfræðilegar stellingar. Og það sem
enn betra er, þá svífa þeir ofar trúarbrögðum og
trúflokkum. Þeir laða alla að sér, vekja forvitni flestra og
er trúað af fólki úr öllum trúflokkum.
Skoðað frá öðru sjónarhorni, þá er fyrirbærið alveg
sérstakt ef við lítum á engla bara sem guðlegar verur, sem
hafi þann eina tilgang að vera milliliðir og boðendur Guðs
vilja. Sem aðskildir og einstakir kraftar í „sköpuðum“ al-
heimi, mundi milliganga þeirra þannig vera dásamleg
boðun.
Ef við, á hinn bóginn, samþykkjum þá forsendu að þeir
séu, líkt og við, hlekkir í alheimskeðju lífsins, þá verður
66 MORGUNN