Morgunn - 01.12.1997, Qupperneq 69
Ljósverur: englar eða andar?
auðveldara að útskýra athafnir
þeirra.
„Nei, þeir mynda ekki sérstaka
tegund ólíka öðrum anda-
verum,“ skrifar Allan Kardec.
„Þeir eru andar, sem hafa hreins-
að sig af öllum vanköntum og
náð hæðsta stigi þróunarskal-
ans.“
Sem slíkra ber nærvera þeirra
með sér mikla útgeislun, ein-
hvers konar sérstaka birtu, ein-
kennandi fyrir stöðu þeirra.
Englar eru, eftir því sem Allan
Kardec segir, efsti hluti þróun-
arstigans. Sá stigi hefur óteljandi
fjölda af þrepum, úr hellinum og
upp á svið engla. Birta ljóss þeirra er það sem greinir þá
frá hverjum öðrum.
Túlkun skynjunaratvika er ekki laus við utanaðkomandi
áhrif eða jafnvel fordóma og væntingar fyrirfram.
„Ég hef oft verið kallaður engill,“ segir Silfur-Birkir,
ljósvera, sem talaði í gegnum Maurice Barbanel, frægan
enskan miðil. „Oft þegar fólk sér birtu okkar,“ bætir
Silfur-Birkir við, „þá verður það gagntekið og bregst við
samkvæmt trúarskoðunum sínum.“
Þessi staðreynd er augljós í eftirfarandi tilvitnunum úr
bókinni „Umvafin ljósinu,“ metsölubók, sem var sölu-
hæst í meira en 20 vikur:
Bls. 31: „...Ég er dáin, “ hugsaði ég. En áður en ég gat
hreyft mig, hirtust skyndilega þrír menn við hliðina á
mér... Þeir virtust vera u.þ.b. 70 eða 80 ára gamlir. Þeir
MORGUNN 67