Morgunn - 01.12.1997, Page 81
Afangaskýrsla rannsóknanefndar SRFI
þeim tekist að þekkja látið fólk, eins og það leit út á sínum
yngri árum, t.d. með meira og dekkra hár en þegar það
lést. Báðar þessar tilraunir, þ.e. Spiricom og Vidicom, eins
og myndatilraunirnar eru nefndar, byggjast að sjálfsögðu
verulega á aðstoð miðils og fólks að handan. Er
rannsóknanefndin nú að heija undirbúning að því að
reyna að endurtaka þessar tilraunir hér og þá helst varð-
andi myndirnar. Felst sá unirbúningur m.a. í því að
komast í samband við góðan miðil og koma upp, ef
mögulegt er, samstarfsfólki fyrir handan. Teljum við þann
möguleika orðinn nokkuð raunhæfan og er gaman að geta
greint frá því að nefndinni hefur borist jákvætt svar í
gegnum miðil varðandi hugsanlegt samstarf hér að lútandi
frá mönnum er nú lifa handan landamæra okkar heims.
Ekki er þó alveg ljóst ennþá hvenær það samstarf og
samband getur hafist formlega, þar sem umræddur miðill
mun þarfnast frekari þjálfunar, m.a. til þess að fleiri aðilar
en hans aðal leiðbeinandi geti starfað í gegnum hann. Sú
þjálfun er þegar í gangi og vafalaust er hún hugsuð til
fleiri verka miðilsins sjálfs en eingöngu þess sem hér um
ræðir. Við vonum að sjálfsögðu að umrætt samstarf geti
hafist hið fyrsta, en hér dugir auðvitað ekki að sýna
óþolinmæði, þessi atriði verða og munu hafa sinn tíma og
gang. Tæpast er vafi á að þetta verkefni er með þeim
merkari sem nefndin undirbýr nú um stundir, og teljum
við að ýmislegt fleira markvert geti leitt af slíku samstarfi
yfir landamærin, í þá veru sem nefndin starfar.
(Aths. við endurskrán. í apríl 1997: Unnið var að tækja-
tilraunum veturinn 1989-1990, með merkjanlegum
árangri í öflun EVP-radda. Að þeini tilraunum stóðu nýir
aðilar ásamt undirrituðum, þar sem upprunalega nefndin
náði ekki að lieQa starfsemi aftur. Myndatilraunir skiluðu
MORGUNN 79