Morgunn - 01.12.1997, Síða 89
Áfangaskýrsla rannsóknanefndar SRFI
sem lengst. Reynslan hlýtur að vera eitt það mikilvægasta
í slíku starfi, mönnum er ekki alltaf ljóst kannski, við
hvað er að fást í einstökum tilfellum og því oft fullrar
aðgæslu þörf. Má í því sambandi geta þess að okkur barst
eitt sinn, í tengslum við verkefni, sem við þá vorum að
leggja fyrstu drög að, aðvörun að handan um, að ef ekki
væri rétt og gætilega að farið, þá gæturn við nefndarmenn
orðið illa úti.
Dæmið um snjóboltann, sem hleður utan á sig, á við um
þessi störf sem og önnur. Reynslan, sem meðlimir
rannsóknanefndarinnar fá í þessu starfi, ávöxtur þess og
niðurstöður, verða markvissari og vonandi árangursríkari,
eftir því sem á líður.
Ég vil að lokum þakka samstarfsmönnum mínum í
nefndinni kærlega fyrir frábært samstarf á þessu fyrsta
starfsári hennar. Það er fullljóst, að hefðu þessir öðlingar
ekki komið til starfa i þessari nefnd og sýnt þann rnikla
starfsvilja og það jákvæða hugarfar, sem þeir svo
sannarlega gerðu og gera, þrátt fyrir mikið annríki á
öðrum vígstöðvum, þá hefði árangur og afköst nefnd-
arinnar orðið öllu minni.
MORGUNN 87