Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 94
Hugheimar
þeirra, sem hafa tekið hinar meiri háttar vígslur. Enginn
lærisveinn getur starfað með fullri meðvitund í hug-
heimum fyrr en meistari hans hefur kennt honum að nota
huglíkama sinn og ekki einu sinni á hinum lægstu
svæðum þeirra. Auk þess verður hann að hafa tekið
allmiklum þroska í andlegum efnum, til þess að geta
starfað á hinum hærri svæðum. Hann þarf að hafa náð því
að sameina sinn innra og ytri mann. Heilavitund hans
verður ekki aðeins að verða fyrir meiri eða minni áhrifum
yfirvitundarinnar eða hins innra manns, heldur verður
maðurinn að finna að hann er hinn innri maður og ekki
aðeins hinn ytri. Hann verður að samkenna sig sinu æðra
eðli. Og jafnvel þótt honum sé vissulega markaður bás af
jarðneska líkamanum, þá hefur hann samt sem áður ráð á
hæfileikum hins innra manns og þekkingu, enda hefur
hann þá tekið mjög miklum þroska.
Hinir heilögu fullnumar og hinir innvígðu menn eru
vissulega dýrðleg sjón í augum þeirra manna, sem hafa
lært að skynja þá í hugheimum. Þeir eru að sjá sem dýrð-
legir ljós- eða litarhnettir, er stökkva öllum illum áhrifum
á burtu, hvar sem þeir koma, þeir hafa áþekk áhrif á alla
þá menn er koma í námunda við þá og sólskinið hefur á
blómin. Út frá þeim streyma friðar- og sæluáhrif, svo að
jafnvel þeir menn er geta ekki séð þá, verða oft varir við
návist þeirra. Langmikilvægasta starfsemin, sem hinir
heilögu fullnumar hafa með höndum, fer frarn á hinu
himneska tilverustigi og aðallega á hinum hærri svæðum
þess. Þar geta þeir haft beinlínis áhrif á hinn innra mann.
Og þaðan láta þeir berast öll hin meiri háttar áhrif sín, er
valda breytingum á aldarandanum. Allar mannúðar- og
líknarhreyfingar eiga rætur sínar að rekja til þeirrar starf-
semi er þeir hafa með höndum á hærri svæðum hugheima.
92 MORGUNN