Morgunblaðið - 22.02.2009, Blaðsíða 56
56 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
6 8 2
2 4 6 9 3
5 8 3 6
4 1 6 3
2 7 5 8 4 6
5 4 2 7
3 5 4 1
6 2 1 3 5
2 4 7
9 1 5 6
6 5 1 2
1 7 8
4 5 1 7
6 4 9
9 8 7 6
1 2 4
6 8 4 2
4 9 3 7
4 1 3
9 1
7 8 5 2
1 3 9 8
6 7
1 3 9 7
7 6 9 2
8 5
4 3 6
3 5 4 8 7 6 9 2 1
7 9 6 2 5 1 3 8 4
1 2 8 3 9 4 7 6 5
5 4 3 7 6 2 8 1 9
9 7 2 1 8 3 5 4 6
8 6 1 9 4 5 2 3 7
6 8 9 4 3 7 1 5 2
2 3 5 6 1 9 4 7 8
4 1 7 5 2 8 6 9 3
7 9 3 5 4 8 1 6 2
2 5 1 7 9 6 3 4 8
8 4 6 3 2 1 9 7 5
5 1 4 6 8 9 2 3 7
3 8 9 2 5 7 4 1 6
6 7 2 1 3 4 8 5 9
9 3 8 4 7 5 6 2 1
1 2 5 8 6 3 7 9 4
4 6 7 9 1 2 5 8 3
5 1 2 8 3 9 6 4 7
8 6 3 7 1 4 9 5 2
7 4 9 2 6 5 8 3 1
4 7 8 1 2 3 5 9 6
9 2 6 5 8 7 4 1 3
1 3 5 4 9 6 7 2 8
2 8 7 9 4 1 3 6 5
6 9 1 3 5 8 2 7 4
3 5 4 6 7 2 1 8 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 22. febrúar,
53. dagur ársins 2009
Orð dagsins: En Jesús hrópaði: “Sá
sem trúir á mig, trúir ekki á mig, held-
ur þann sem sendi mig.“ (Jh. 12, 44.)
Víkverji botnar ekkert í nútímasamskiptaháttum. Vinir eru
hættir að hittast því þeir kjósa held-
ur að eiga samskipti á Facebook og
eyða gríðarlegum tíma í netsam-
skipti, jafnvel mörgum klukkustund-
um á dag. Víkverji viðurkennir að
vera óhemju gamaldags en hefur
reyndar fremur talið það kost í fari
sínu en galla. Ef hann þekkir fólk vill
hann hitta það augliti til auglitis.
x x x
Hvernig stendur á því, hugsarVíkverji oft, að fólk telur sig
vera að rækta samskipti við vini sína
með því að eiga við þá ópersónuleg
samskipti á netinu. Samskipti við þá
sem fólki þykir vænt um byggjast á
nálægð og hlýju. Á netinu er ekkert
slíkt, þar eru bara orð sem svo auð-
velt er að misskilja. Víkverji átti
einu sinni í sérstaklega miklum sam-
skiptum við vin sinn í gegnum tölvu-
póst. Þetta var mjög gaman til að
byrja með en svo fór vinurinn að
misskilja orð og stórmóðgaðist
vegna einhvers sem Víkverji hafði
skrifað vegna þess að hann heyrði
ekki hljóminn í orðunum heldur las
þau bara af skjá. Vinalega og kank-
vísa stríðni misskildi hann til dæmis
sem harðneskjulegar áminningar.
Víkverji fór síðan sjálfur að mis-
skilja orð vinar síns. Ekkert af þessu
leiðréttist fyrr en vinurinn og Vík-
verji hittust augliti til auglitis.
x x x
Víkverji á vinkonu sem stendur ímiklu netsambandi við mann
sem hún er skotin í. Hún hittir þann
mann sjaldan og því er hún alltaf í
netsambandi við hann. Sífellt er að
koma upp misskilningur þeirra á
meðal vegna einhvers sem annað
þeirra hefur sagt á netinu og er vel
meint en sá sem fær sendinguna
skilur ekki réttum skilningi. Þegar
þetta góða fólk hittist þarf það síðan
að ræða þennan misskilning í
smæstu atriðum, þar til næsta mál
kemur upp í næstu netsendingu.
x x x
Víkverji botnar ekkert í öllu þessuog er harðákveðinn í því að fara
aldrei á Facebook, víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 flautar, 4
skvampa, 7 örum, 8
þvaðra, 9 nöldur, 11
magurt, 13 fiskurinn, 14
bál, 15 galdratilraunir,
17 sníkjudýr, 20 ambátt,
22 stinga, 23 fiskar, 24
kul, 25 dauf ljós.
Lóðrétt | 1 krydd, 2
skaut, 3 víða, 4 korn, 5
gulls, 6 ávöxtur, 10 fisk-
ur, 12 álít, 13 smásletta,
15 stórrar húðfellingar,
16 svigna, 18 blíðuhót,
19 nytjalönd, 20 gefi að
borða, 21 tuddi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 steingrár, 8 vikni, 9 efast, 10 nei, 11 reisa, 13
neita, 15 fetil, 18 hakar, 21 íla, 22 skort, 23 kurla, 24 rik-
lingur.
Lóðrétt: 2 takki, 3 ilina, 4 grein, 5 ábati, 6 hver, 7 ótta,
12 sói, 14 eða, 15 fisk, 16 troði, 17 lítil, 18 hakan, 19
kerru, 20 róar.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 g6 4. d4
cxd4 5. Rxd4 Bg7 6. Be3 d6 7. Dd2
Rf6 8. f3 0-0 9. 0-0-0 Bd7 10. g4 Da5
11. Rb3 Dd8 12. Bh6 Re5 13. Bxg7
Kxg7 14. De3 Hc8 15. h4 h5 16. gxh5
Rxh5 17. Hg1 b5 18. f4 b4 19. Rd5
Rg4 20. Df3 f5 21. Bd3 e6 22. exf5
exf5 23. Hde1 Bc6 24. Rd4 Bd7 25.
He7+ Kh6
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur – Skeljungsmótinu sem
lauk fyrir skömmu í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12.
Elsa María Kristínardóttir (1.769)
hafði hvítt gegn Guðlaugu Þorsteins-
dóttur (2.134). 26. Hxg4! fxg4 27.
De4 Hg8 28. f5 Hg7 29. f6! Rxf6 30.
Df4+ og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Frumleg sögn.
Norður
♠ÁD109865
♥D6
♦G
♣DG4
Vestur Austur
♠42 ♠73
♥ÁK1073 ♥82
♦4 ♦D10987653
♣ÁK732 ♣9
Suður
♠KG
♥G954
♦ÁK2
♣10865
Suður spilar 3G.
Það sást í þætti gærdagsins að kín-
verska konan Liu Yiqian fer ekki
troðnar slóðir í sögnum. Hér er hún
aftur að verki undir lok úrslitaleiksins
við Japan í NEC-keppninni. Liu var í
norður, önnur á mælendaskrá. Allir á
hættu. Vestur vakti á 1♥ og Liu sagði
rólega 1♠ á sjölitinn. Pass í austur, 1G
í suður og 2♣ í vestur. Stóra stundin.
Suður hafði lofað fyrirstöðu í hjarta og
sjálf átti Liu þriðju fyrirstöðu í laufi og
hjálp í hjarta að auki. Allt vísaði í eina
átt: Liu stökk í 3G og uppskeran var
níu gullfallegir slagir.
Hinum megin enduðu NS í 4♠.
Vörnin getur tekið þar fimm fyrstu
slagina, en þreytan var augljóslega far-
in að segja til sín hjá keppendum.
Laufnían kom út, vestur tók ♣Á-K og
spilaði ♣7 í þriðja slag, sem austur
trompaði og spilaði … tígli?!
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Allir þarfnast aðdáenda. Leggðu
þig allan fram um að halda þínu striki því
annars er hætt við að þú missir tökin á því
sem þú ert að gera.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Vertu ekki vonsvikinn þótt þér hafi
mistekist eitthvað. Þetta snýst um að
gera verkið rétt, ekki hvert er haldið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Einhver sýnir þér ljúfa athygli.
Hlustaðu þótt þig langi ekki til þess, og
reddaðu svo málunum fyrir aumingja fól-
ið. Sýndu fulla tillitssemi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Temdu þér hófsemi á öllum svið-
um. Litlar dyggðir eru stórir áfangar.
Kannski gerir þú of miklar kröfur til ein-
hvers. Sýndu umburðarlyndi, við erum öll
mannleg.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Vertu opinn fyrir leiðum til þess að
kanna andlegan þroska þinn, annaðhvort í
einrúmi eða í félagi við aðra. Hagaðu þér
eins og þú vilt að félagar þínir geri.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Einhver ótti steðjar að þér í sam-
bandi við það að þú náir ekki takmarki
þínu. Samvinna og hjálpsemi vinnufélaga
þinna koma þér til góða þessa dagana.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Eins og þú ert nú frábærlega rök-
rænn, þá getur verið mjög erfitt að snúa
þér. Láttu draumana ná tökum á þér í dag
og boltinn byrjar að rúlla.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Gerðu þér í hugarlund að fólk
vilji hjálpa þér, þó að hlutirnir kunni að
virðast öðruvísi. Það er til lítils að sitja
með hendur í skauti og halda að hlutirnir
komi af sjálfu sér.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ættir að kaupa eitthvað til
heimilisins. Hvort sem þér gefst kostur á
að gefa ráð, kenna eða skemmta þér,
reyndu að gera góðverk gagnvart barni.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Hin bjargfasta trú þín á að aðrir
komi þér til hjálpar rætist. Gerðu eitthvað
þrennt að gagni, og þá er dagurinn ekki
ónýtur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þetta er góður tími til að leysa
deilur sem tengjast sameiginlegri ábyrgð
á börnum. Leitaðu samt ekki langt yfir
skammt því tækifærin eru við höndina.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu þér ekki detta í hug að þú
getir ekki unnið verk sem þér hafa verið
falin. Gættu þess bara að blekkja ekki
áheyrendur þína, þú þarft þess ekki.
Stjörnuspá
Þetta gerðist …
22. febrúar 1903
Fríkirkjan í Reykjavík var
vígð. Í söfnuðinum, sem var
stofnaður haustið 1899, voru
þá um fimm þúsund manns.
22. febrúar 1984
Snjóflóð féll á steypustöð í
Ólafsvík. Tveir menn voru
hætt komnir. Húsið eyðilagð-
ist svo og ýmis tæki. Á sama
tíma féllu snjóflóð á veginn um
Ólafsvíkurenni.
22. febrúar 1991
Sigríður
Snævarr af-
henti trún-
aðarbréf
sitt sem
sendiherra í
Svíþjóð og
varð þar
með fyrst
íslenskra
kvenna til
að gegna slíku embætti.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Randy L. Bolstad er 34 ára og
langar að fá pennavinkonu frá Ís-
landi. Hann langar einnig að læra
um Ísland. Heimilisfang hans er:
16943045 - FCI Gilmer
P.O. Box 6000
Glenville, W V 26351 USA
Martin Rees vill eignast penna-
vin á Íslandi. Hann safnar póst-
kortum og langar í kort frá landinu
með myndum af byggingum, vitum
og dýrum. Heimilisfang hans er:
29 Countisbury Avenue,
Llandsumney Cardiff: CF3 5RN,
South Whales
Bretland
Pennavinir
„Ég skil ekkert hvert árin fóru svona fljótt,“ segir
Bryndís Víglundsdóttir sem er 75 ára í dag. Hún
segist þakka fyrir að vakna hress á hverjum degi
og njóta lífsins. „Ég verð úti í Boston á afmæl-
isdaginn þar sem ég bjó lengi og vann. Ég fer á
mínar fyrri slóðir og hitti gamla kunningja og
vini. Það er svo gaman hvað heimurinn er lítill,
það er lítið mál að ferðast á milli. Bryndís og Elín,
vinkona hennar, hafa stofnað fyrirtækið „Gaman
að lifa“ og er takmarkið að gefa út hljóðbækur.
„Ég hef alltaf sagt sögur, bæði fullorðnum og
börnum og þar sem ég er orðin gömul var að
hrökkva eða stökkva með fyrirtækið. Ég setti sögur af Grýlu á disk,
hún er ágætis kerling og strákarnir hennar eins og aðrir krakkar.“
Bryndís man vel eftir tíu ára afmælisdegi sínum. „Mamma var dugleg
við að gera dagamun á afmælisdögum okkar barnanna. Ég man svo
vel eftir borðinu, dúkurinn var ísaumaður með silkigarni og ofan á
honum kínverskt bollastell, komið utan úr heimi. Þá virtist Kína vera
lengra frá en tunglið. Ég man vel eftir þessu tilstandi. Það er mik-
ilvægt að börn finni að þau eru sérstök á afmælisdaginn.“
Bryndís var m.a. skólastjóri Þroskaþjálfaskóla Íslands.
Bryndís Víglundsdóttir fv. skólastjóri 75 ára
Boston á afmælisdaginn
Nýirborgarar
Reykjavík Einar Valur
Bachmann fæddist 22.
október kl. 17.37. Hann vó
2.290 g og var 44 cm. For-
eldrar hans eru Rán Bach-
mann Einarsdóttir og
Garðar Ingi Ingvarsson.
Reykjavík Christiaan
Bragi fæddist 4. nóv-
ember kl. 23.33. Hann vó
3.865 g og var 52 cm lang-
ur. Foreldrar hans eru
Sandra Magnúsdóttir og
Ragnar Guðmundsson.
Reykjavík Jón Þór fædd-
ist 27. desember kl. 11.16.
Hann vó 16 merkur og var
52 cm langur. Foreldrar
hans eru Sólveig Krist-
jánsdóttir og Lárus Jóns-
son.