Morgunblaðið - 22.02.2009, Blaðsíða 26
26 Kvikmyndir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
Það er engum blöðum um það að fletta að bar-
áttan um velflest óskarsverðlaunin í ár mun
standa á milli tveggja ólíkra en einkar vand-
aðra mynda. Enn og aftur kemur sérdeild 20th
Century Fox, Fox Searchlight (Sideways,
Little Miss Sunshine), áberandi við sögu sem
framleiðandi Viltu vinna milljarð – Slumdog
Millionaire. Myndin hefur hesthúsað nánast öll
verðlaun sem staðið hafa í boði til þessa og
margir á því að loksins verði lukkan með Se-
archlight. Í þessu sambandi er hollt að hafa í
huga að einungis fagmenn hverrar stéttar hafa
kosningarétt í sinni grein (aðeins kvikmynda-
tökumenn velja besta tökustjórann o.s.frv.) og
hafa öll fagfélögin gengið frá sigurvegurum
ársins í sérkosningum félagsmanna. Það
tryggir engin verðlaun en hlutaðeigendur eru
vissulega sigurstranglegri. Að leikurum und-
anskildum hafa fagmennirnir að baki Viltu
vinna milljarð unnið nánast með tölu öll heið-
ursverðlaun sinna fagfélaga.
Viltu vinna milljarð er byggð á metsölubók
sem fór eins og eldur í sinu um allar jarðir fyr-
ir fáeinum árum og innihald hennar vel þekkt
víðast hvar. Í anda Searchlight var hún ódýr í
framleiðslu, með engan þekktan kvikmynda-
leikara innanborðs en valinkunna kvikmynda-
gerðarmenn í hverju rúmi, með Danny Boyle
fremstan í flokki í leikstjórastólnum. Boyle er
fjölhæfur og athyglisverður listamaður sem
hefur margsannað getu sína með jafn ólíkum
myndum og Trainspotting og Sunshine.
Hin myndin sem telst líkleg til sigra, The
Curious Case of Benjamin Button, er í flesta
staði fullkomin andstæða Villtu vinna milljarð;
fokdýr, brellum og stjörnum hlaðin Holly-
wood-stórmynd af gamla skólanum. Það er
freistandi að líta á verðlaunaafhendinguna í ár
sem hluta af breytingunum sem jarðarbúar
eru ekki aðeins að uppgötva „hér á landi á“,
eins og skáldið orti svo unaðslega, heldur blasa
þær við í öllum heimshornum. Gamli og nýi
tíminn rekast óvenju illa saman nú um stundir.
Eins og oft hefur komið fram er sá agnúi við
bandarísku kvikmyndaakademíuna, The Aca-
demy of Motion Picture Arts and Sciences –
AMPAS, að meðalaldur meðlimanna er í hærri
kantinum, endurnýjunin hæg. Afleiðingin sú
að vissrar íhaldssemi hefur gætt þótt ástandið
hafi breyst til batnaðar að undanförnu. Wein-
stein-bræður, fyrrverandi eigendur litla risans
Miramax (sem nú er sofandi uppi í hillu hjá
Disney), voru löngum óprúttnir við að pota sín-
um myndum framarlega í goggunarröðina, en
eru orðnir áhrifalitlir í dag.
Það er engin spurning að margt á eftir
að koma á óvart í kvöld
þegar kvikmyndaiðn-
aðurinn heldur sína
81. uppskeruhátíð,
þessi augnablik þeg-
ar menn og verk taka
upp á því að vinna,
þvert á allar get-
spár, pælingar
og skoð-
anakann-
anir, og
BESTI KARLLEIKARINN
Í AÐALHLUTVERKI
Að mínu mati (og fjölda annarra) liggja úr-
slitin fyrir í þessum spennandi flokki. Fyrir
það fyrsta er hlutverk fjölbragðaglímukapp-
ans þreytta, Randys „Ram“ Robinsons,
klæðskerasniðið fyrir segulmagnaða hæfileika
eða öllu frekar persónuleika Rourkes, og hann
nýtir þá til fulls. Það yrði harmsefni í kvik-
myndasamfélaginu vestra ef Rourke, með all-
an sinn grófa sjarma, yrði skilinn eftir í sæti
sínu og hinn ungi, spræki og hæfileikaríki Pitt
myndi göslast upp á sviðið. Stórleikararnir
Penn og Langella eiga sjálfsagt lengra í land í
ár. Jenkins líka.
Mickey Rourke – The
Wrestler
mánuði og útlitið er dökkt hvað austurrísku,
japönsku og ísraelsku myndirnar varðar. Sú
síðastnefnda hefur hlotið góða dóma, þykir
einkar frumleg og umhugsunarverð. Þjóðverj-
arnir hafa verið að hirða verðlaun í þessum
ágæta flokki að undanförnu, það ætti að vera
kominn tími á verk frá gömlu menningar- og
kvikmyndaþjóðinni.
Entre les murs (Frakkland)
Der Baader Meinhof Komplex (Þýskaland)
Vals Im Bashir (Ísrael)
Revanche (Austurríki)
Okuribito (Japan)
BESTI LEIKSTJÓRINN
Fái Viltu vinna milljarð Óskar sem besta
mynd ársins er Boyle nánast öruggur ósk-
arshafi í ár og satt best að segja betur að hon-
um kominn en hinn bandaríski kollegi hans,
Fincher, sem átti öllu frekar að vinna þau fyrir
Zodiac. TCCOBB er ekki jafn myrk og grimm
og fyrrnefndar myndir, tæknilega óaðfinn-
anleg og gott betur, er frábær afþreying og
mikið bíó. En, þetta stóra en, Villtu vinna millj-
arð er einfaldlega í öðrum gæðaflokki og Boyle
verður valinn ef akademían grípur ekki til ein-
hverra afsökunarbellibragða í garð Finchers.
Slíkar uppákomur eru vel þekkt fyrirbrigði á
afhendingarkvöldi. Gus Van Sant er í nokkuð
fjarlægu þriðja sæti, Daldry (Billy Elliott, The
Hours) á minni möguleika í ár og Hollywood-
gulldrengurinn Howard er í hópi tilnefndra af
gömlum vana.
Danny Boyle – Slumdog Millionaire
David Fincher – The Curious Case of Benjamin
Button
Gus Van Sant – Milk Stephen Daldry – The
Reader
Ron Howard – Frost/Nixon
eru einmitt þær sem krydda kvöldið og menn
minnast hvað helst þegar fram í sækir.
Umræðan um Óskarinn hefur verið einsleit í
ár, almennt eru menn að vona að það verði
kennt við upprisu „lítilmagnans“, sigur hæfi-
leikamanna með lítið fé milli handanna á fíns-
lípaðri framleiðsluvöru úr vellauðugri drauma-
verksmiðju Hollywood. Ef svo fer þarf engum
að bregða og myndin um hann Ben Button
verður víðs fjarri því að lenda í hópi hinna
„ómerkilegri“ verðlaunamynda. Hvað sem því
viðvíkur eiga leikstjórarnir Boyle og David
Fincher örugglega eftir að hampa „Skara
frænda“ síðar á ferlinum ef þeir ná ekki taki á
honum í kvöld.
Hugh Jackman, strallinn borubratti, verður
kynnir í kvöld og forvitnilegt að sjá hvernig
hann kemst frá því erfiða hlutverki. Vonandi
vel, því stjórnendur hafa verið fjári mistækir
upp á síðkastið. Þá stytta þeir vonandi athöfn-
ina, láta hana ganga hraðar í takt við tímann.
Þá er komið að því að spá í sigurvegarana í
helstu flokkunum. Þann líklegasta set ég efst-
an, síðan koll af kolli.
BESTA MYND ÁRSINS
Búið er að fara nokkuð yfir þennann mik-
ilvæga flokk hér að framan, þar kemur fram að
Villtu vinna milljarð – Slumdog Millionaire er
frá þessum bæjardyrum séð sigurstranglegri
en TCCOBB. Talsvert miklu frumlegri og mik-
ilvægari og tekur á þjóðfélagsböli í næststæsta
ríki heims, böli sem við höfum gott af að kynn-
ast þótt flest fari vel hjá lukkuriddaranum.
Fyrst og síðast er hún óaðfinnanlega gerð á
flestan hátt og hefur þessi ótrúlega saga vonar
og vel gerða ævintýri yfirbragð ósvikinnar
kvikmyndaklassíkur. TCCOBB ætti meiri
möguleika ef hún minnti ekki jafn óþyrmilega
á Forrest Gump og raun ber vitni. Hún er frá-
bær afþreying og nánast vammlaus skemmt-
un, böðuð töfraljóma tækninnar, allt til þeirra
tímamóta er söguhetjan hættir á drátt-
arbátnum og hefur „normalt líf“.
Aðrar myndir eiga lítinn möguleika. Milk er
of sérhæfð, en gæti sett strik í reikninginn,
hinar tvær yrðu sannarlega óvæntir sigurveg-
arar,
Slumdog Millionaire
The Curious Case of Benjamin Button
Milk
The Reader
Frost/Nixon
BESTA ERLENDA MYNDIN
Nú versnar í því. Mér vit-
anlega hefur aðeins franska
myndin Entre le murs verið
frumsýnd hérlendis þegar
þessar línur eru skrifaðar. Von
er á þýsku myndinni Der Baa-
der Meinhof Komplex í næsta
Einvíg haugbúa n
Hverjir hreppa Óskarinn í ár?
The Dark Knight
Öruggt þykir að Heath
heitinn Ledger verði
verðlaunaður.
Frost/Nixon
Þótt myndin sé
fín er ólíklegt að
hún verði valin
besta myndin.
Revolutionary
Road Myndin er
líkleg til að vinna
Óskar fyrir bestu
búningahönnun.
Changeling Angelina
Jolie í hlutverki sínu;
handsaumaðri Ósk-
arsrullu. En þykir þó
ekki líklegust til að
hreppa hnossið.
Benjamin Button Brad Pitt
mun líklega lúta í lægra
haldi fyrir Mickey Rourke.
Doubt Meryl Streep
hefur tvívegis fengið
Óskarinn og gæti
hreppt hann í þriðja
skiptið núna.