Morgunblaðið - 22.02.2009, Blaðsíða 18
18 Tónlist
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
A
fleiðingar efnahags-
kreppunnar birtast í
ýmsum myndum. Aldr-
ei er líklega meiri þörf
fyrir upplyftingu and-
ans en við slíkar aðstæður en eigi að
síður vill það oft verða svo að menn-
ing og listir eru fyrst skornar niður
við trog. Ekki bara á Íslandi.
Þannig hefur kreppan varpað
dimmum skugga yfir óperuhús víðs-
vegar um Bandaríkin. Óperan í
Baltimore lýsti nýverið yfir gjald-
þroti eftir tæplega sex áratuga starf,
óperufyrirtækið Chattanooga í Ten-
nessee hefur aflýst öllum sínum upp-
færslum og Pacific-óperan í Santa
Ana í Kaliforníu hefur brugðið slag-
brandi fyrir dyrnar.
Eftir hrun hlutabréfamarkaðarins
vestra hefur dregið verulega úr
styrkjum til óperuhúsa, bæði op-
inberum og ekki síður frá hendi tón-
elskra fyrirtækja og einstaklinga.
Fólk heldur að sér höndum.
Launalækkun hjá Met
Frægasta óperuhús Bandaríkj-
anna, Metropolitan í New York, hef-
ur ekki farið varhluta af ástandinu og
þegar hefur þurft að grípa til marg-
víslegra aðgerða. Meðal annars er
búið að lækka laun starfsmanna um
10% og hætt hefur verið við að end-
urvekja þrjár eldri uppfærslur.
„Þessar aðgerðir munu hjálpa okkur
að ná endum saman en hætt er við að
fleira þurfi að koma til,“ segir fram-
kvæmdastjóri hússins, Peter Gelb.
Metropolitan kynnti í vikunni dag-
skrá sína fyrir næsta leikár sem
hefst í september. Gelb segir árið
leggjast vel í sig en viðurkennir að
efnahagsástandið hafi sett strik í
reikninginn. „Vegna efnahags-
ástandsins líður mér svolítið eins og
Orfeusi andspænis hliðum heljar,“
sagði hann á blaðamannafundi og
vísaði í fræga óperu Christophs
Willibalds Glucks, Orfeus og Evri-
dísi.
Gelb lítur á það sem varnarsigur
að aðeins hafi dregið úr aðsókn sem
nemur 1,3% frá fyrra leikári og ekki
eru áform um miklar verðhækkanir á
aðgöngumiðum fyrir haustið.
Ódýrustu sætin í Metropolitan
kosta nú tæpar 2.300 krónur en þau
dýrustu tæplega 42.500 krónur um
helgar.
Hvort óperuunnendur skila sér
síðan í jafnríkum mæli í hús næsta
vetur á eftir að koma í ljós.
Metropolitan hefur um skeið sent
út sýningar beint í háskerpu til kvik-
myndahúsa í 35 löndum og selst hef-
ur 1,1 milljón miða á yfirstandandi
leikári. Gelb upplýsir að þetta verk-
efni hafi staðið vel undir sér og verði
fram haldið í því skyni að brjóta nið-
ur þá ímynd óperunnar að hún sé
Slokknar á óperunni?
Óperuhús eiga undir högg að sækja í Bandaríkjunum eftir að efnahags-
kreppan skall á af fullum þunga og hafa sum hver lagt upp laupana. Helsta
húsið, Metropolitan, hefur þurft að rifa seglin en stefnir eigi að síður að
metnaðarfullri dagskrá næsta vetur.
Virt Renée Fleming syngur við
athöfnina þegar Barack Obama
var settur í embætti Banda-
ríkjaforseta um daginn.
Með ábendingum viðskiptavina mótum við nýjan banka.
Starfsfólk Íslandsbanka þakkar ábendingarnar.
Hlusta á viðskiptavini.Karlmaður, 35 ára.
Láta viðskiptavininn vera í fyrirrúmi.Kona, 45 ára.
Vera varkárari í framtíðinni.Kona, 45 ára.
Veita persónulega ráðgjöf.Kona, 39 ára.
Styðja við bakið á fyrirtækjum í erfiðleikum. Karlmaður, 48 ára.
Vera banki fólksins.Kona, 45 ára.
Hlutverk bankans á að vera stuðningur við samfélagið.Karlmaður, 40 ára.
Halda maraþoninu áfram! Kona, 35 ára.
Opin fyrir nýjungum.Karlmaður, 27 ára.
Styrkja samfélagsleg málefni á sviði menningar og íþrótta. Karlmaður, 60 ára.
Mannleg, traust samskipti.Kona, 52 ára.
Fyrir fólk eins og mig og þig. Kona, 47 ára.
Kenna unga fólkinu að fara vel með peningana. Kona, 63 ára.
Ekki hvetja til bruðls og offjárfestinga. Kona, 44 ára.
Leiðbeinandi um fjárhag fólksins í þjóðfélaginu. Kona, 52 ára.
Gagnsæi í rekstri.Karlmaður, 40 ára.
Spara í nafnabreytingunni.Kona, 25 ára. Hætta þessu útrásarbulli.Kona, 37 ára.
Frá því í nóvember höfum við kallað eftir skoðunum viðskiptavina í útibúum og á heimasíðu okkar
um það hvernig þeir vilji að nýr banki starfi. Við notum þessar ábendingar til að móta nýjan banka.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-2
2
5
4