Morgunblaðið - 22.02.2009, Blaðsíða 13
fræðinga. „Það er mikilvægt fyrir
lækni að geta komist inn í sjúkraskrá
þegar á þarf að halda en okkur hefur
stundum þótt persónuverndarsjón-
armið hafa verið full ofarlega í for-
gangsröðinni. Að okkar áliti eiga þau
að vera númer tvö, hagsmunir sjúk-
lingsins númer eitt. Það getur til að
mynda komið í veg fyrir að byrja
þurfi allar rannsóknir frá grunni,“
segir Matthías en eðli málsins sam-
kvæmt má engan tíma missa leiki
grunur á alvarlegum sjúkdómi.
Fótsporin sýnileg
Landlæknir segir þetta fyr-
irkomulag alls ekki þurfa að vera á
kostnað persónuverndar. Auðveld-
lega mega koma í veg fyrir að menn
fari að óþörfu inn í sjúkraskrár með
því að tryggja að alltaf sjáist hverjir
hafi farið inn í kerfið og hvers vegna.
„Við köllum þetta „fótsporakerfi“ en
það myndi tryggja að menn færu
ekki inn í sjúkraskrár án þess að eiga
þangað gilt erindi.“
Landlæknisembættið er einmitt að
senda frá sér dreifibréf þess efnis að
ströng viðurlög séu við því að fara
inn í sjúkraskrá að óþörfu. Jafnvel sé
hægt að sækja menn til saka.
Í dreifibréfinu segir m.a.: „Allur
aðgangur að heilsufarsupplýsingum
skal vera skráður og fylgjast þarf
reglulega með hverjir nota gögnin og
hvernig og bregðast við ef notkun er
ekki í samræmi við reglur. Nið-
urstöður innra eftirlits skulu skráðar
og vera aðgengilegar eftirlitsaðilum
þegar eftir því er leitað.
Öllu starfsfólki ber að undirrita
trúnaðaryfirlýsingu. Nauðsynlegt er
að tilkynna starfsmönnum að haft
verði eftirlit með aðgangi þeirra að
rafrænni sjúkraskrá, hvernig eftirlit-
inu er háttað og hver viðurlög eru ef
starfsmaður brýtur reglur.“
Ýmsar leiðir eru til að kvarta yfir
heilbrigðisþjónustu eða leita réttar
síns og eru sumar þeirra bundnar í
lög, einkum lög um landlækni nr. 41/
2007 og lög um réttindi sjúklinga nr.
74/1997. Leiðirnar eru fleiri en fólk
gerir sér í fljótu bragði grein fyrir.
Hægt er að beina kvörtun eða kæru:
Beint til þess heilbrigðisstarfs-
manns sem meðhöndlaði sjúklinginn.
Til viðkomandi yfirlæknis.
Til stjórnar stofnunar eða fram-
kvæmdastjóra.
Til landlæknis.
Til sjúklingatrygginga.
Til dómstóla.
Langalgengast er að fólk beini
kvörtunum til landlæknisembætt-
isins. Alls bárust embættinu 274
kvartanir og kærur árið 2007 en þær
voru 271 árið 2006. Matthías segir
þessi mál af ýmsum toga, allt frá því
að vera lítilfjörleg upp í að vera graf-
alvarleg.
Matthías segir fleiri kvartanir
hlutfallslega koma inn á borð hjá
sínu embætti á ári hverju en á Norð-
urlöndunum en það helgist af því að
kerfið sé mun smærra í sniðum hér á
landi. Ýmis smærri mál sem land-
læknisembættið fái til umfjöllunar
hér kæmu aldrei inn á borð hjá sam-
bærilegum embættum í stærri lönd-
um. Þegar horft er til fjölda alvar-
legra mála sýnist Matthíasi hann
vera svipaður hér og í nágrannalönd-
unum.
Matthías segir í mörgum tilfellum
heppilegt, einkum í smærri málunum
að leita fyrst til viðkomandi læknis
eða yfirlæknis hans og láta reyna á
hvort ekki sé hægt að leysa málið á
þeim vettvangi. Dugi það ekki til úr-
lausnar sé eðlilegt að snúa sér til
landlæknisembættisins.
Matthías segir embættið hafa þá
vinnureglu að leita umsagnar sér-
fræðinga sem ekki starfa með kvört-
unarþola, jafnvel út fyrir landstein-
ana. „Sumir óttast það sem þeir kalla
„læknamafíu“ hér á landi en ég hef
aldrei orðið var við hana. Hér er unn-
ið faglega að rannsókn allra mála,“
segir hann.
Embættið áskilur sér rétt til að
gefa sér góðan tíma til að komast að
niðurstöðu, einkum í flóknustu mál-
unum.
Matthías segir kvörtunum og kær-
um hafa fjölgað talsvert frá því hann
hafði fyrst aðkomu að þessum málum
fyrir um tveimur áratugum en fjöld-
inn hafi verið nokkuð stöðugur und-
anfarin fjögur til fimm ár.
Fram til ársins 2007 gat fólk líka
leitað til nefndar um ágreiningsmál í
heilbrigðisþjónustu en Matthías seg-
ir málum sem komið hafa inn á borð
til embættis hans ekki hafa fjölgað að
ráði eftir að nefndin var lögð niður.
Varðandi faglega starfsemi
Landlæknisembættið tekur við
kvörtunum sjúklinga er varða fag-
lega starfsemi innan heilbrigðisþjón-
ustu. Með faglegri starfsemi er eink-
um átt við skoðun, rannsóknir,
meðferð og/eða eftirlit af hálfu heil-
brigðisstarfsmanna, brot á þagn-
arskyldu, vottorðagjöf, meðferð trún-
aðarupplýsinga, upplýsingagjöf til
sjúklings og aðgengi að sjúkraskrá.
Landlæknisembættið er sjálf-
stæður og óháður eftirlits- og rann-
sóknaraðili sem leitast við að leiða
fram niðurstöðu varðandi það hvort
unnið var faglega rétt í máli sjúk-
lings af hálfu heilbrigðisstarfsmanns
eða hvort einhverju hafi verið áfátt í
starfi heilbrigðisstarfsmanns miðað
við viðurkennda þekkingu. Ekki er
því tekin afstaða til þess hvort sjúk-
lingur fékk bestu mögulegu meðferð.
Landlæknisembættið ákveður ekki
hvort atvik kunni að vera bótaskylt.
Umsókn um bætur vegna tjóns í
tengslum við meðferð innan heil-
brigðisþjónustunnar skal beina til
Sjúkratrygginga Íslands, ef um er að
ræða tjónsatvik innan opinberrar
heilbrigðisþjónustu. Ef um er að
ræða tjónsatvik sem varð á einka-
stofu læknis, tannlæknis eða annarra
heilbrigðisstarfsmanna skal beina
bótakröfu að tryggingafélagi viðkom-
andi sérfræðings.
Sjónarmið kvörtunarþola
Eftir að kvörtun hefur borist er
kvörtunarþola (lækni eða öðrum heil-
brigðisstarfsmanni) sent bréf með
upplýsingum um að kvörtun hafi bor-
ist ásamt afriti af kvörtunarbréfinu.
Óskað er eftir sjónarmiðum hans í
málinu. Einnig er óskað eftir upplýs-
ingum úr sjúkraskrá þess sem kvart-
aði. Þegar öll gögn liggja fyrir fara
starfsmenn embættisins yfir málið.
Tækifæri gefst til þess að koma að
athugasemdum eða leiðréttingum áð-
ur en gengið er frá endanlegri álits-
gerð landlæknisembættisins. Kvört-
un skal að öllu jöfnu bera fram innan
tveggja ára frá því að sjúklingur átt-
aði sig á misfellum varðandi meðferð
sína, og í síðasta lagi innan tíu ára frá
því atvikið átti sér stað.
Niðurstaða kvörtunarmála berst
málsaðilum skriflega. Landlækn-
isembættið getur beint tilmælum til
heilbrigðisstarfsmanns um úrbætur,
áminnt hann eða svipt hann starfs-
leyfi. Leyfissvipting er alvarleg og
þungbær niðurstaða, sem ekki er
beitt nema við mjög alvarleg eða
endurtekin brot í starfi.
rtur á samspili en kunnáttu
Morgunblaðið/Þorkell
Landlæknir „Sérstaklega þarf að huga að því að upplýsingagjöf og samspil
og samskipti milli heilbrigðisstarfsfólks séu með eðlilegum hætti,“ segir
Matthías Halldórsson um skilvirkni íslenska heilbrigðiskerfisins.
!
" #
$ %
&
'
%
(
#
%
)
*
+
,
-
.
/
0
1
2
*3
**
*+
*,
*-
*.
*/
*0
ljóð samdi John Milton á árunum
1658 til 1663. Þessi epíski tólf bóka
flokkur fjallar um freistingar Adams
og Evu og brottvísun þeirra úr ald-
ingarðinum Eden.
„Nú eru góð ráð dýr, við verðum
að finna leiðir til að gera nemendum
kleift að enduruppgötva þetta efni
og jafnvel uppgötva það í fyrsta
sinn,“ sagði lárviðarskáldið.
Það eru margbrotnar tilvísanir í
Biblíuna víðar en í Paradísarmissi,
verk Williams Shakespeares vísa
þangað aftur á bak og áfram. Svo
dæmi sé tekið.
„Þessar bókmenntir hafa komist á
stall fyrir þær sakir að þær segja
okkur svo margt um mannlegt eðli.
Það er ekki bara nautn heldur hefur
þýðingu í sjálfu sér,“ segir Motion.
Hann tók skýrt fram að þetta hafi
ekkert með trúarafstöðu að gera.
Fólk þurfi ekki endilega að vera
kristið til að geta skilið bókmenntir
en þekking á Biblíunni væri eigi að
síður nauðsynleg. Það sé svo mörg
önnur gildi þar að finna en bara þau
sem lúta að kristinni trú. „Þegar allt
kemur til alls tökum við gríska goða-
fræði ekki trúanlega í samtímanum
en hún sannar eigi að síður gildi sitt
á hverjum degi.“
Líku líkt og Biblían
John Mullan, prófessor við Uni-
versity College í Lundúnum, tekur í
sama streng og Motion í samtali við
Reuters-fréttastofuna. Að hans áliti
stafar þekkingarskortur enskra
nema meðal annars af því að háskól-
arnir eru farnir að taka inn nem-
endur sem hafa breiðari bakgrunn
en áður og eru ekki eins vel að sér í
sígildum bókmenntum.
Mullan gerði nýverið könnun
meðal nemenda sinna og þá kom í
ljós að enginn þeirra hafði hugmynd
um að heiti leikritsins Líku líkt (e.
Measure for Measure) eftir Shake-
speare er tilvísun í Biblíuna. Í
Matteusarguðspjalli segir: „Því að
með þeim dómi, sem þér dæmið,
munuð þér dæmdir, og með þeim
mæli, sem þér mælið, mun yður
mælt verða.“
Á líka við hér á landi
Gottskálk Þór Jensson, dósent í
almennri bókmenntafræði við Há-
skóla Íslands, segir orð Motions um
margt eiga við hér á landi líka. Hann
tekur sérstaklega undir vangaveltur
lárviðarskáldsins um Biblíuna.
„Henni hefur verið ýtt út úr bók-
menntafræði af flóknum hug-
myndafræðilegum ástæðum. Þessa
þróun má rekja aftur til fyrri hluta
tuttugustu aldar. Ástæðan er sú að
mönnum þótti hin kristna hug-
myndafræði of ráðandi og vildu losa
sig undan þessu viðmiði sem ríkt
hafði í mörg hundruð ár. Þetta er
líka liður í því að taka upp vís-
indalegri vinnubrögð í bókmennta-
fræði,“ segir Gottskálk.
Þetta hefur leitt til þess að nem-
endur – og sumir kennarar jafnvel
líka – átta sig ekki lengur á einföld-
ustu tilvísunum í hina helgu bók.
„Þetta er vitaskuld óheppilegt og
Biblían þarf að koma meira inn í bók-
menntafræðinám aftur. Hún er
nauðsynleg ætli menn að skilja sam-
hengið í vestrænum bókmenntum,“
segir Gottskálk og bætir við að sú
þróun sé raunar hafin.
Óvægnir höfundar
Burtséð frá þessu segir Gottskálk
álitamál hvort höfundar geri sér yfir
höfuð greiða með því að gera of mikl-
ar kröfur til lesenda sinna. Enda hafi
það verið svo gegnum aldirnar að
grunnupplýsingar fylgi oft með
verkum. Nefnir hann í því sambandi
grísk-aþenska harmleiki frá því á
fimmtu öld fyrir Krist. Þar sé unnið
með þekktar goðsögur en lesandinn
fái samt framsetningu á grundvall-
aratriðum, svo sem sögum og per-
sónum sem vísað er til. „Verstur er
grískur kveðskapur á þriðju og ann-
arri öld fyrir Krist og latnesk sögu-
ljóð á fyrstu og annarri öld eftir
Krist. Þar eru höfundar óvægnir og
gera miklar kröfur til lesenda sinna.
Persónur eru t.a.m. ekki alltaf
nefndar á nafn. Þetta hefur þótt til-
gerðarlegt og of langt gengið.“
Útópískar pælingar
Um leið og taka má undir vanga-
veltur Motions segir Gottskálk þær
öðrum þræði vera útópískar pæl-
ingar. Það geti ekki allir vitað allt.
Verið inni í öllum hefðum. „Besti
prófessor í bókmenntum þekkir ekki
allt út og inn, hvað þá nemendur.
Það er ekki hægt að gera þá kröfu.
Þetta er svolítið eins og að heimta að
allir kunni latínu í dag.“
Þekkingarleysi er eitt en hreinar
rangtúlkanir annað. Það er vanda-
mál sem Gottskálk segir kennara í
bókmenntafræðum hér á landi glíma
við líka. „Tökum Snorra Eddu sem
dæmi. Nemendur hafa lesið það
verk í framhaldsskólum og koma inn
í háskóla með kolrangar hugmyndir
um merkingu þess og hvað það
stendur fyrir. Þessar túlkanir eru
jafnvel fimmtíu til sextíu árum á eft-
ir tímanum vegna þess að fram-
haldsskólakennarar hafa ekki fylgst
nægilega vel með. Þeir eru jafnvel
að túlka verk af þessu tagi í ljósi
þjóðernishyggju en þá túlkun er
löngu búið að endurskoða.“
Í aldingarðinum Adam og Eva, hvaða fólk var það aftur?
13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009